Capacent segir Eik hafa varla verið tækt til verðmats við skráningu

turninn.jpg
Auglýsing

Fast­eigna­fé­lagið Eik var varla tækt til verð­mats við skrán­ingu þar sem í skrán­ing­ar­lýs­ingu félags­ins voru engar fjár­hags­upp­lýs­ingar um fast­eigna­fé­lagið Lands­fest­ar, sem Eik yfir­tók á árinu 2014. Eik var samt sem áður skráð á markað í apríl 2015. Þetta er mat sér­fræð­inga Capacent sem unnið hafa skýrslu um fast­eigna­fé­lögin þrjú í Kaup­höll­inni. Greint er frá skýrsl­unni í Morg­un­blað­inu í dag.

Þar segir Snorri Jak­obs­son, ráð­gjafi og séfræð­ingur hjá Capacent, að sam­kvæmt lögum um verð­bréfa­við­skipti eigi að vera hægt að meta fram­tíð­ar­horfur félags í skrán­ing­ar­lýs­ingu þess áður en það sé skráð á mark­að. Hjá Eik hafi allar upp­lýs­ingar um eignir félags­ins verið til fyr­ir­myndar en vantað upp­lýs­ingar um stóran hluta rekst­urs­ins þar sem upp­lýs­ingar um Land­festar hafi vant­að, en Land­festar eru um 40 pró­sent af eignum og tekjum Eikar á árinu 2015. Bók­fært virði fjár­fest­inga­eigna Lands­festa í árs­lok 2014 var 22,7 millj­arðar króna og rekstr­ar­tekjur þess á árinu voru um 2,2 millj­arðar króna. Snorri segir mjög sér­stakt að birta bara for­tíð­ar­rekstur eins félags­ins þegar fram­tíð­ar­rekstur og verð­mæti félags­ins bygg­ist á rekstri tveggja félaga.

Gengi Eikar hefur lækkað frá skrán­ingu. Útboðs­gengi í útboði félags­ins var 6,8 krónur á hlut en hlutur í Eik selst nú á 6,3 krón­ur.

Auglýsing

Arion banki beggja megin borðs­ins



Eik var ekki eina fast­eigna­fé­lagið sem skráð var á markað í apríl á þessu ári. Fast­eign­ar­fé­lagið Reitir var líka skráð þá. Í skýrslu Capacent segir að þáver­andi stærsti eig­andi Reita og Eika, Arion banki, hafi setið beggja vegna borðs­ins og ákvarðað útboðs­gengi. Bank­inn hafi því verið bæði í hlut­verki fjár­festis og þjón­ustu­að­ila sem þætti vart eðli­legt í nágranna­löndum okk­ar. Slík vinnu­brögð seú til þess fallin að grafa undan trú­verð­ug­leika bæði útgef­anda og fyr­ir­tæk­is­ins sem selt er.

Af fast­eigna­fé­lög­unum þremur sem skráð eru í Kaup­höll telur Capacent að Reg­inn, sem skráð var á markað 2012, sé metið lengst frá sann­virði sínu. Lík­lega sé verið að refsa félag­inu fyrir ónóga upp­lýs­inga­gjöf um eignir þess.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None