Samningar eru að takast hjá hjúkrunarfræðingum og ríkinu hjá Ríkissáttasemjara, að því er fram kom í fréttum RÚV. Samningar hafa náðst um kaup og kjör og verið er að fínpússa nýjan kjarasamning.
Samkvæmt heimildum Kjarnans er horft til þess að hækka laun um tæplega 20 prósent á samningstíma, en nákvæm útlistun á samningsatriðum liggur ekki fyrir enn.
Kjaradeilur Hjúkrunarfræðinga, BHM og ríkisins fara í gerðardóm, samkvæmt lögum sem Alþingi setti 13. júní. Fulltrúar BHM gengu af samningafundi í dag eftir aðeins tíu mínútna viðræður, að því er fram kom á vef RÚV.
Með samningum við hjúkrunarfræðinga, það er þegar þeir verða frágengnir, stendur því eftir deilan við BHM.
Auglýsing