Ragna: Næstu ákvarðanir eru pólitískar - Ekki litið til Keflavíkur

18529660873_c734a6cc39_z.jpg
Auglýsing

„Núna liggur bolt­inn hjá aðilum sam­komu­lags­ins. Við höfum skilað af okk­ur, þannig að næstu ákvarð­anir eru í raun póli­tísk­ar. Þessi gögn ættu að gera það að verkum að hægt er að taka ákvarð­an­ir,“ sagði Ragna Árna­dóttir í sam­tali við Kjarn­ann að loknum blaða­manna­fundi í dag. Á fund­inum var skýrsla Rögnu­nefnd­ar­innar svoköll­uðu kynnt, um kosti og kalla flug­vall­ar­stæða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Er það mat stýri­hóps­ins að Hvassa­hraun sé álit­leg­asti kost­ur­inn fyrir flug­völl í Reykja­vík.

Ragna segir vinnu nefnd­ar­innar nú að fullu lokið og að ekk­ert sé að vand­bún­aði að taka næstu skref í mál­inu. „Við fengum þetta verk­efni, að skoða flug­vall­ar­kosti á höf­uð­borg­ar­svæð­inu utan Vatns­mýr­ar. Við bendum á þessa kosti og segj­um: Það er eng­inn galla­laus. Þeir hafa allir sína kosti og galla, en ef það er horft til þró­un­ar­mögu­leika þá er Hvassa­hraun álit­leg­ast­ur.

Auglýsing


„Að það náist sátt um það að tryggja rekstr­ar­ör­yggi Vatns­mýr­ar­flug­vallar og að þessi mál verði skoðuð áfram á grund­velli okkar nið­ur­staðn­a,“ segir Ragna, aðspurð um hvað hún vilji sem for­maður stýri­hóps­ins að ger­ist næst í mál­inu. Í hóp­inum sátu auk Rögnu þau Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir fyrir hönd rík­is­ins, Matth­ías Svein­björns­son fyrir hönd Icelandair og Dagur B. Egg­erts­son fyrir Reykja­vík­ur­borg. Verk­efn­is­stjóri var Þor­steinn R. Her­manns­son hjá Mann­viti.

Kefla­vík ekki skoðuð

Nefndin kann­aði fjögur ný flug­vall­ar­stæði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og segir Ragna að vinnan hafi verið bundin við höf­uð­borg­ina. Þess vegna hafi flutn­ingur inn­an­lands­flugs til Kefla­víkur ekki verið skoð­að. „Það var ekki hluti af okkar vinn­u,“ segir Ragna en sá kostur hefur oft verið nefndur í umræð­unni um umdeildan flug­völl­inn í Vatns­mýri og fram­tíð hans.



Flug­vall­ar­stæðin sem voru skoðuð eru við Bessa­staða­nes, Hólms­heiði, Hvassa­hraun og Löngu­sker auk þess sem breytt útfærsla á legu flug­brauta í Vatns­mýri var met­in. Áætl­aður stofn­kostn­aður yrði í öllum til­vikum á bil­inu 22 til 25 millj­arðar króna, nema á Löngu­skerjum þar sem hann er met­inn um 37 millj­arðar króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None