325 hótelherbergi munu bætast við á Laugaveginum á næstunni. Unnið er að stækkun þriggja hótela og byggingu tveggja nýrra hótela. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.
Hótelin þrjú sem verða stækkuð eru Hótel Alda á Laugavegi 66-68, CenterHótel Skjaldbreiður á Laugavegi 16 og CenterHotel Miðgarður við Hlemm. Fjölgun herbergja í þessum þremur stækkunum nemur rúmlega 150 hótelherbergjum.
Þá er verið að byggja 60 herbergja hótel við Laugaveg 34-36 en það verður opnað næsta sumar. Einnig er í byggingu hótel á vegum Hilton keðjunnar á Hljómalindareitnum við Laugaveg og Hverfisgötu. Þar verða 115 hótelherbergi.
Auglýsing
Samtals eru þetta því 325 hótelherbergi við Laugaveg.