Actavis átti aldrei að fara úr landi og alltaf að vera íslenskt fyrirtæki

19074241728_4d3b384514_b.jpg
Auglýsing

Act­a­vis er fyr­ir­tæki með sterkar rætur á Íslandi. Það varð til úr Pharmaco og hefur síð­an, í gegnum sam­ein­ingar og yfir­tök­ur, stækkað í að verða eitt stærsta sam­heita­lyfja­fyr­ir­tæki í heimi og síðar alhliða lyfja­fyr­ir­tæki. ­Fyr­ir­tækið hefur líka haft um 700 manns í vinnu hér­lend­is. En á næstu miss­erum mun það breyt­ast og stör­f­unum fækka mik­ið.

Í ljósi þeirra svipt­inga hafa ýmis ummæli for­svars­manna Act­a­vis um fram­tíð­ar­á­form fyr­ir­tæk­is­ins og tengsl við Ísland á und­an­förnum árum verið rifjuð upp í bak­her­berg­inu.

Í júní 2010 var Claudio Albrecht ráð­inn for­stjóri Act­a­v­is. Í frétta­til­kynn­ingu vegna þess sagði meðal ann­ars: „ „Eftir margar yfir­tökur og hraðan vöxt und­an­far­inna ára er yfir­stjórn Act­a­vis stað­sett í fimm lönd­um, víða um Evr­ópu og í Banda­ríkj­un­um. Ákveðið hefur verið að sam­eina æðstu stjórn­endur félags­ins á einum hent­ugum stað á meg­in­landi Evr­ópu. Leitað er að réttu stað­setn­ing­unni. Engin breyt­ing verður á starf­semi Act­a­vis á Íslandi að öðru leyti. Hér á landi verður áfram mið­punkt­ur­inn í þró­un­ar­starf­sem­inni ásamt því sem verk­smiðjan í Hafn­ar­firði mun áfram gegna lyk­il­hlut­verki í fram­leiðslu og mark­aðs­setn­ingu nýrra lyfja.“

Auglýsing

Björgólfur Thor Björg­ólfs­son, sem þá var aðal­eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins, ákvað í kjöl­farið að blogga um mál­ið. Í færslu sem hann setti inn á vef sinn btb.is þann 24. júní 2010 sagði hann að utan mögu­legrar færslu á yfir­stjórn Act­a­vis úr landi væri „ör­uggt að Act­a­vis verður áfram á Íslandi þar sem rætur þess liggja“.

Snemma árs 2011 var síðan til­kynnt að Act­a­vis ætl­aði að flytja höf­uð­stöðvar sínar frá Íslandi til Sviss. Guð­björg Edda Egg­erts­dótt­ir, þáver­andi for­stjóri Act­a­vis á Íslandi, lét þá hafa eftir sér á hádeg­is­verð­ar­fundi Félags við­skipta­fræð­inga og hag­fræð­inga að fyr­ir­tækið sæi sitt óvænna vegna skatta og sífelldra breyt­inga á þeim og flytti höf­uð­stöðv­arnar frá Íslandi. Skömmu síðar sagði hún í við­tali við Speg­il­inn á RÚV: „Við höfum gefið það upp að við erum ekki á leið úr landi. Við erum að setja upp höf­uð­stöðvar í Sviss. Þar er skattaum­hverfið mjög hag­stætt, ekki ein­göngu fyrir fyr­ir­tæki heldur einnig starfs­fólk. Það breytir því þó ekki að Act­a­vis verður áfram íslenskt fyr­ir­tæki og við erum ekki á föru­m“.

bjorgolfur

Claudio Albrecht tók enn dýpra í árinni í við­tali við Við­skipta­blaðið í jan­úar 2011 þegar hann var spurður hvort að starf­semi Act­a­vis væri á leið úr landi. „Act­a­vis er og verður íslenskt félag“. Hann full­yrti sömu­leiðis að Act­a­vis væri alls ekki til sölu. Hann starfar ekki lengur hjá Act­a­vis Group.

Banda­ríska lyfja­fyr­ir­tækið Watson Pharmaceut­icals keypti hins vegar Act­a­vis á vor­dögum 2012. Í skulda­upp­gjöri Björg­ólfs Thors við lána­drottna sína, sem lauk í ágúst í fyrra, fékk hann að halda hlut í Act­a­vis, sem er skráð á mark­aði í Banda­ríkj­un­um. Sá eign­ar­hluti hefur gert Björgólf Thor ævin­týra­lega ríkan á ný og skil­aði honum meðal ann­ars inn á lista For­bes yfir þá sem eiga meira en einn milj­arð dali. Eignir hans voru þar metnar á 1,3 millj­arð dali, um 172 millj­arða króna.

Um miðjan júní 2015 breytt­ist nafn Act­a­vis í All­ergan eftir enn eina sam­ein­ing­una og síð­ast­lið­inn mánu­dag til­kynnti fyr­ir­tækið að ákvörðun hefði verið tekin um að loka lyfja­verk­smiðju þess í Hafn­ar­firði, sem hjá starfa 300 manns, árið 2017.

Reyndir menn í við­skipt­um, sem nú pukrast í bak­her­berg­inu, sýna því fullan skiln­ing að fyr­ir­tæki í alþjóð­legri starf­semi þurfi að þró­ast og vaxa. Því getur alltaf fylgt miklar breyt­ing­ar. En þeir benda einnig á að saga Act­a­vis sýni að það þurfi alltaf að taka yfir­lýs­ingum for­svars­manna fyr­ir­tækja um fram­tíð­ar­á­form með fyr­ir­vara. Því í dag, fimm árum eftir að til­kynn­ing sagði að verk­smiðjan í Hafn­ar­firði myndi gegna lyk­il­hlut­verki í starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins hefur henni verið lok­að. Fimm árum eftir að Björgólfur Thor blogg­aði að það væri „ör­uggt að Act­a­vis verður áfram á Íslandi þar sem rætur þess liggja“ var til­kynnt um að tæpur helm­ingur starfa hjá fyr­ir­tæk­inu hér­lendis hverfa úr landi. Fjórum og hálfu ári eftir að þáver­andi for­stjóri Act­a­vis á Íslandi sagði að Act­a­vis yrði áfram íslenskt fyr­ir­tæki og væri ekki á förum, og þáver­andi for­stjóri Act­a­vis-­sam­steypunnar sagði „Act­a­vis er og verður íslenskt félag“  er Act­a­vis ekki lengur íslenskt félag.

Því hringja aðvör­un­ar­bjöllur þegar Act­a­vis leggur sér­stak­lega fram við að til­kynna að önnur starf­semi hér­lendis utan lyfja­verk­smiðj­unn­ar, sem veitir um 400 manns vinnu, verði óbreytt. Hversu lengi mun það vil­yrði halda?

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None