Eygló segist hafa náð saman við Bjarna Ben um „ramma“ utan um húsnæðismál

16828751532_f775e49c59_z.jpg
Auglýsing

Félags­mála­ráðu­neytið og fjár­mála­ráðu­neytið hafa „náð saman um ramma“ um frum­vörp félags­mála­ráð­herra um hús­næð­is­mál. Eygló Harð­ar­dóttir félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra greinir frá þessu í við­tali í Frétta­blað­inu í dag.

Þar ræðir Eygló um hús­næð­is­mál, en eins og Kjarn­inn hefur greint frá komst ekk­ert af þeim fjórum hús­næð­is­frum­vörpum sem Eygló og hennar ráðu­neyt­i hefur unnið að í gegnum þing­ið. Meðal ann­ars voru frum­vörp hennar um hús­næð­is­bóta­kerfi og félags­legt leigu­í­búða­kerfi gagn­rýnd af skrif­stofu opin­berra fjár­mála í fjár­mála­ráðu­neyt­inu auk þess sem Eygló og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra tók­ust á um málin opin­ber­lega.

„Fjár­mála­ráðu­neytið taldi okkur hafa dregið frum­vörpin til baka, sem var síðan leið­rétt. Við höf­um, ásamt aðilum vinnu­mark­að­ar, verka­lýðs­fé­lögum og sveit­ar­fé- lögum náð saman um ramma, frum­vörpin koma aftur í haust og verða afgreidd fyrir ára­mót,“ segir Eygló í Frétta­blað­in­u. Kjarn­inn greindi frá því í vor þegar fjár­mála­ráðu­neytið sagði Eygló hafa dregið frum­vörpin til baka, sem hún vís­aði á bug.

Auglýsing

„Við Bjarni erum ekk­ert alltaf sam­mála, sem er ekk­ert skrít­ið. Ég er félags­mála­ráð­herra og vil fá aukna fjár­muni í minn mála­flokk á meðan verk­efni fjár­mála­ráð­herra eru að gæta að rík­is­sjóði. Eðli máls­ins sam­kvæmt er hann áhuga­sam­ari um að lækka skatta og borga skuld­ir.“

Eygló seg­ist sann­færð um að henni tak­ist að gjör­breyta hús­næð­is­kerf­inu á Ísland­i. „­Lausnin er að bjóða upp á val­kosti. Og við búum til kerfi sem hentar hverju ein­asta heim­ili á Ísland­i,“ seg­ir Eygló.

Hún seg­ist þekkja ástandið á leigu­mark­aði vel af eigin raun og vegna ástands­ins sé verið að leggja áherslu á að fjölga leigu­í­búðum og ná niður leig­unni.  „Svo finnst mér gíf­ur­leg ósann­girni gagn­vart þeim sem eru á leigu­mark­aði að húsa­leigu­bætur hafa verið tak­mark­aðri en það sem við höfum verið að gera fyrir þá sem kaupa.“

Vill gera betur við öryrkja og aldr­aða



Eygló ræðir einnig um stöðu aldr­aðra og öryrkja, sem margir hafi talað um að verði eftir nú þegar gerðir hafa verið nýir kjara­samn­ing­ar. „Við erum að taka risa­skref varð­andi hækkun bóta. Tæp­lega tíu millj­arðar koma auka­lega inn í almanna­trygg­ingar á næsta ári. Við ætlum okkur að gera bet­ur. Það er nauð­syn­legt. Ég hef talað skýrt fyrir því,“ segir Eygló um það mál. Hún seg­ist líka sann­færð um að kjara­bæt­urnar verði raun­veru­leg­ar. „Ég er sann­færð um það. Við erum með öfl­ugan hag­vöxt, lítið atvinnu­leysi og lága verð­bólgu. Þannig að þessi skref eru að skila sér í raun­veru­legri kaup­mátt­ar­aukn­ingu. Þetta er að mjakast og mik­il­vægt að fólk viti að við ætlum ekki að hætta. Með því að hafa afgang af rík­is­sjóði, borga niður skuldir okkar – það þýðir að við höfum meiri fjár­muni að setja inn í vel­ferð­ar­kerf­i.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None