Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagaráðherra, hefur boðað afnám allra tolla, að tollum á matvöru undanskildum, í tveimur skrefum. Stefnt er að afnámi tolla á fatnað og skó 1. janúar 2016 og afnám annarra tolla komi til framkvæmda 1. janúar 2017. Almenn vörugjöld höfðu áður verið afnumin um síðustu áramót.
Þetta kemur fram á vefsíðu fjármála- og efnahagsráðuneytisins í dag. Fyrr í dag var greint frá fyrirætlunum ráðherra um að afnema alla tolla nema á matvöru. Fram kemur í tilkynningu ráðuneytisins að gert sé ráð fyrir að 324 tollskrárnúmer, sem falla undir fatnað og skó, lækki í núll prósent á árinu 2016 og að 1609 tollskrárnúmer til viðbótar, sem eru aðrar vöru, lækki í núll prósent árið 2017.
„Tollar hafa hamlandi áhrif á viðskipti og draga úr alþjóðaviðskiptum í heild sinni. Þegar tollur er lagður á innflutta vöru hækkar verðið sem innlendir neytendur þurfa að greiða fyrir vöruna sem aftur dregur úr eftirspurn eftir henni. Afnám tolla lækkar vöruverð til neytenda, bætir samkeppnishæfni seljanda og eykur skilvirkni á innlendum markaði,“ segir einnig.
Þriggja manna starfshópur sem skipaður var í mars síðastliðnum skilaði skilagrein þann 15. maí síðastliðinn. Í henni kemur meðal annars fram að gjaldfærðar tekjur ríkissjóðs af tollum námu á árinu 2014 um 5,7 milljörðum króna. Hlutfall matvöru var 34,2 prósent, hlutfall fatnaðar var 31,5 prósent og hlutfall annarra vara var 34,3 prósent.