Beikonhátíð. Hátíð íslenskra svína?

Guðný Nielsen
rsz_wallpaper1.jpg
Auglýsing

Ár eftir ár segja kann­anir ham­borg­ar­hrygg­inn vin­sælasta jóla­mat Íslend­inga. Föstu­dags­kvöld eru vin­sæl pizzu­kvöld á íslenskum heim­ilum þar sem þús­undir fjöl­skyldna sporð­renna pepp­eróní. Margir for­eldrar setja skinku­sam­loku í nesti barn­anna og fæst getum við ímyndað okkur dög­urð án þess að boðið sé upp á beikon. Svína­kjöt er vissu­lega ein allra vin­sælasta kjöt­teg­und land­ans, enda ekki furða. Fram­boðið er heil­mik­ið. Við slátrum um 80.000 svínum árlega.

En, hvar eru þessi svín? Öll þessi 80.000 svín.

Ég ætla að gefa mér að eðli­legt þyki að með­al­ís­lend­ing­ur­inn berji eitt svín augum árlega. Aðeins eitt. Þá ætti ég, þrjá­tíuogsex ára kon­an, að hafa séð 36 svín á lífs­leið­inni. Ég get full­vissað ykkur um það að sú tala er fjarri lagi. Ég velti því fyrir mér hvort það séu ekki ansi góðar líkur á því að fjöl­margir Íslend­ingar hafi hrein­lega aldrei séð svín á Íslandi. Aldrei. Nema kannski svínin sem við geymum í Hús­dýra­garð­in­um.

Auglýsing

Bændur hér í den hleyptu svín­unum sínum út, rétt eins og öðrum hús­dýr­um. Á þeim tíma var hug­takið land­bún­aður aug­ljóst rétt­nefni yfir þessa búgrein. Nú, árið 2015, þegar svín fá aldrei sól­ar­ljósið séð, nema það brjóti sér leið inn um glugga, stendur hann vart undir nafni. Ein­hvern veg­inn á ég auð­veld­ara með að sjá fyrir mér land­búnað í upp­sveitum og dölum en í póst­núm­er­inu 116 Kjal­ar­nes.

Bar­átta fyrir vel­ferð svína er ekki auð­veld. Hún er það ekki úti í heimi. Hún er það heldur ekki á Íslandi. Hug­sjónir og pen­ingar eru and­stæð­ingar sem standa ekki jafn­fætis í þessum slag. Bar­átta sam­taka eins og Velbú má síns lít­ils á meðan fram­leið­endur neita að bæta úr brýnum vel­ferð­ar­málum í svína­haldi og Íslend­ingar halda samt sem áður áfram að kaupa svína­kjöt. Við setjum enn pepp­eróní á pizzuna og skinku á sam­lok­una, án þess að gera okkur grein fyrir að með því, og aðeins því, erum við að sam­þykkja fram­leiðslu­að­ferð­irn­ar. Það verða engar breyt­ingar nema við sjálf knýjum þær fram.

Mis­líkar þér að gyltur á Íslandi séu haldnar í grindum svo þröngum að þær geta aðeins legið eða staðið og aldrei snúið sér við? Mis­líkar þér að eina hreyf­ingin sem gylta á Íslandi fær er göngu­ferðin frá grind­inni í got­básinn, þar sem hún fæðir grís­ina, og aftur til baka, tvisvar á ári? Mis­líkar þér að gyltur á Íslandi séu sæddar aftur aðeins nokkrum dögum eftir að þær hætta með grís­ina sína á spena? Mis­líkar þér að svín á Íslandi fá ekki að fara út undir bert loft eins og önnur hús­dýr? Ef já, sýndu það í verki í næstu búð­ar­ferð.

Við í Velbú vonum að Beikon­há­tíð­in, sem fram fer nú um helg­ina, verði Íslend­ingum áminn­ing um það hve brýnt er að bæta vel­ferð svína í svína­húsum lands­ins. Þá óskum við aðstand­endum hátíð­ar­innar alls hins besta og hvetjum þau til þess að gera vel­ferð svína hátt undir höfði á næstu hátíð.

Höf­undur er ­Stjórn­ar­maður í Vel­bú, sam­tökum sem berj­ast fyrir bættri vel­ferð búfjár á Íslandi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None