Eygló hvetur almenning til að hjálpa flóttafólki

16828751532_f775e49c59_z.jpg
Auglýsing

Eygló Harð­ar­dóttir félags­mála­ráð­herra hvetur almenn­ing til þess að hjálpa flótta­mönnum sem hingað koma. Hún sagð­ist vilja taka á móti fleiri flótta­mönn­um. Íslensk stjórn­völd hafa sam­þykkt að taka á móti 50 flótta­mönn­um, en ákvörðun um að taka á móti fleirum hefur ekki verið tek­in.

Eygló ræddi þessi mál í þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni í morgun.

Aðkallandi vandi flótta­fólks í millj­ón­a­tali sem nú flýr stríðs­hrjáð svæði meðal ann­ars í Sýr­landi, Írak og Afganistan hefur leitt til þess að Ban Ki-Moon, aðal­rit­ari Sam­ein­uðu þjóð­anna, hefur beðið þjóðir heims um að leggja miklu meira af mörkum til þess að hjálpa fólk­inu, en að und­an­förnu hefur straumur flótta­fólks til Evr­ópu þyngst veru­lega.

Auglýsing

„Til þess að þetta geti gengið vel eftir þá þurfum við hjálp. Það er fólk á Íslandi núna sem hefur fengið stöðu flótta­fólks og þarf hjálp. Ég hvet fólk til að hafa sam­band við vel­ferð­ar­ráðu­neytið og Rauða kross­inn og spyrja hvað það geti gert til þess að hjálpa. Fólk þarf að fá vinnu, hús­næði, föt og til dæmis aðstoð við að læra á hvernig banka­kerfið virkar,“ sagði Eygló.

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála­ráð­herra, sagð­ist í gær vera hlynntur því að leggja fram stærri hjálp­ar­hönd til flótta­manna, vegna hins for­dæma­lausa vanda sem millj­ónir manna væru í vegna flótta frá átaka­svæð­um.

Mik­ill þrýst­ingur er nú á stjórn­völd um að gera meira fyrir flótta­menn en að taka ein­ungis á móti 50 manns, og hefur meðal ann­ars verið sett upp Face­book síða þar sem skorað er á íslensk stjórn­völd að taka á móti fimm þús­und flótta­mönn­um, og hafa 7.300 manns skráð sig á síð­una með like hnapp á skömmum tíma.





Áður en flótta­fólkið kemur að gadda­vírs­girð­ing­unum Evr­ópu hefur ferða­lag þeirra frá Sýr­landi verið svipað og þess­ara vina.

Posted by Við skorum á stjórn­völd að taka á móti 5000 flótta­mönnum on Fri­day, Aug­ust 28, 2015





Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None