Forstjóri Össurar innleysti kauprétt og hagnaðist um 370 milljónir króna

Ossur_vef.jpg
Auglýsing

Jón Sig­urðs­son, for­stjóri Öss­urar stoð­tækja­tækja­fram­leið­anda, inn­leysti í dag kaup­rétt að hluta­bréfum í félag­inu að mark­aðsvirði um 580 millj­ónir króna. Hagn­aður hans af kaup­rétt­inum nemur um 370 millj­ónum króna, eða 18,7 millj­ónum danskra króna. Í til­kynn­ingu um við­skiptin til Kaup­hall­ar­innar kemur fram að kaup­rétt­ur­inn teng­ist sam­komu­lagi frá því í apríl 2012 milli félags­ins og for­stjór­ans.

Jón fékk bréfin á geng­inu 8,55 danskar krónur á hlut, sem var gengi bréf­anna á mark­aði í apríl 2012. Virði félags­ins hefur hækkað mikið síðan þá og seldi Jón hluta­bréfin á 23,5 danskar krónur á hlut, það er mark­aðs­gengi bréf­anna í dönsku kaup­höll­inni í dag. Félag er tví­skráð á Íslandi og í Dan­mörku. Inn­leystur hagn­aður hans, það er mun­ur­inn á kaup­geng­inu 8,55 danskar krónur á hlut og sölu­geng­inu 23,5 danskar krónur á hlut,  nemur tæp­lega 18,7 millj­ónum danskra króna, jafn­virði um 370 millj­óna króna.

Auglýsing


Í síð­asta mán­uði greindi Við­skipta­blaðið frá því að mán­að­ar­laun Jóns hafi verið um 40 sinnum hærri en með­al­laun á íslenskum vinnu­mark­aði á síð­asta ári. Sam­kvæmt árs­skýrslu Öss­urar voru tekjur hans um 18,4 millj­ónir króna á mán­uði. Með­al­laun á Íslandi voru á sama tíma um 454 þús­und krónur á mán­uði.



Jón hefur um ára­bil verið í hópi launa­hæstu for­stjóra lands­ins og birst efst eða ofar­lega á listum í tekju­blöðum DV og Frjálsrar versl­un­ar. Nafn hans er ekki að finna á list­unum í ár þar sem hann er með skráð lög­heim­ili sitt erlend­is.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None