Lögreglan í Eyjum skrifar frétt um öll brot á Þjóðhátíð, nema kynferðisbrot

herj__lfur_og_f__lk.jpg
Auglýsing

Lög­reglan í Vest­manna­eyjum birti í dag frétt á heima­síðu sinni þar sem hún fór yfir þau mál sem komu upp hjá henni á meðan að á Þjóð­há­tíð í Eyjum stóð um helg­ina. Það er að segja öll þau mál sem snú­ast ekki um kyn­ferð­is­brot, en lög­reglan í Vest­manna­eyjum var búin að ákveða það í aðdrag­anda Þjóð­há­tíðar að upp­lýsa ekki um slíkt brot, að eigin sögn til að vernda þolendur fyrir umfjöllun fjöl­miðla.

Ákvörð­unin hefur verið harð­lega gagn­rýnd og í morgun bætt­ist Björt Ólafs­dótt­ir, þing­maður Bjartrar fram­tíð­ar, í hóp þeirra sem það gera. Björt sagði í stöðu­upp­færslu á Face­book að afstaða lög­reglu­stjór­ans í Vest­manna­eyjum um að tjá sig ekki um kyn­ferð­is­brot sé "al­gjört rugl". Í lok færslu sinnar spurði Björt: „Er betur hægt að rétt­læta Þjóð­há­tíð í Vest­manna­eyjum ef að fréttir af nauðg­unum eru þurk­aðar út svo allir góð­borg­ar­anir geti komið sér heim hressir eftir magn­aða helgi og halda áfram að lifa í lukk­unar vel­standi ófa­vit­andi hvað gekk á í næsta tjaldi?

Já nei, sorry. Allir nema þol­and­inn að kyn­ferð­is­of­beld­inu auð­vitað sem að lög­reglu­stjór­inn í Eyjum og fag­að­il­arnir all­ir, færa skömm­ina svo smekk­lega aftur á silf­ur­fati, einan og yfir­gefin til að ber­a.“

Auglýsing

Ekk­ert minnst á kyn­ferð­is­brot



Páley Borg­þórs­dótt­ir, lög­reglu­stjóri í Vest­manna­eyj­um, sendi í síð­ustu viku út bréf til allra við­bragðs­að­ila sem tengj­ast Þjóð­há­tíð í Eyjum og brýndi fyrir þeim að upp­lýsa fjöl­miðla ekki um kyn­ferð­is­brot sem upp koma á Þjóð­há­tíð um helg­ina. Í bréf­inu, og í við­tölum eftir að það var sent, sagði Páley að þessar aðgerðir væru til að vernda þolendur kyn­ferð­is­brota fyrir umfjöll­un.

Þrátt fyrir mikla gagn­rýni kvik­aði Páley hins vegar hvergi  frá upp­runa­legri afstöðu sinni og ekk­ert hefur verið upp­lýst um hvort kyn­ferð­is­brot hafi komið upp á Þjóð­há­tíð í ár.

Það breytt­ist ekk­ert í frétt sem lög­reglan í Vest­manna­eyjum birti fyrr í dag þar sem starf­semi hennar á Þjóð­há­tíð er gerð, að mestu, upp­. Í frétt­inni er greint frá því að tölu­verður erill hafi verið hjá henni vegna ölv­unar­út­kalla og að um tíma hafi allar fanga­geymslur verið full­ar. Einn hafi gist í fanga­geymslum vegna lík­ams­árásar en við­kom­andi skall­aði konu í and­litið í Herj­ólfs­dal. Þá hafi komið upp um 70 fíkni­efna­mál á hátíð­inni og að í stærsta mál­inu hafi aðili verið hand­tek­inn með á fimmta tug gramma af amfetamíni og kóka­íni á sér.

Í lok frétt­ar­innar seg­ir: "Það er mat lög­regl­unnar í Vest­manna­eyjum að Þjóð­há­tíð Vest­manna­eyja 2015 hafi farið vel fram miðað við þann fjölda sem hingað kom að skemmta sér."

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None