Árið 2014 stöfuðu um sautján prósent tekna HB Granda frá viðskiptum við rússneska aðila. Gróflega áætlað mun innflutningsbann Rússlands á matvöru frá Íslandi lækka tekjur félagsins um um það bil tíu til fimmtán milljónir evra á ársgrundvelli. Félagið á nú um 6 milljónir evra í útistandandi kröfum í Rússlandi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá HB Granda til Kauphallarinnar. Tekið er fram að erfitt sé að meta fjárhagsleg áhrif bannsins á HB Granda. Tíu til fimmtán milljónir evra eru jafnvirði um 1.470 til 2.200 milljóna króna.
Dmitry Medvedev, forsætisráðherra Rússlands, tilkynnti í morgun að Ísland hafi verið bætt við á lista yfir lönd þaðan sem bannað er að flytja inn matvörur frá. Íslandi hefur þar með verið bætt á lista með Evrópusambandslöndum, Bandaríkjunum og Ástralíu en þessi lönd standa saman að viðskiptaþvingunum gagnvart Rússlandi vegna átakanna í Úkraínu.
„Mikilvægi Rússlandsmarkaðar í rekstri HB Granda hefur aukist verulega á undanförnum árum. Árið 2014 stöfuðu til að mynda um 17% tekna félagsins frá viðskiptum við rússneska aðila. Staðgengismarkaðir fyrir helstu afurðir sem seldar eru til Rússlands eru ekki til staðar. Það blasir því við að muni innflutningsbann Rússlands ná til innfluttra sjávarafurða frá Íslandi mun töluverður hluti þess afla félagsins sem unninn er í frystar afurðir á Rússlandsmarkað verða unnin í mjöl og lýsi. Við það mun vinna við aflann minnka og störfum við vinnsluna fækka svo um munar auk þess sem verðmæti aflans mun lækka töluvert,“ segir í tilkynningunni.