Seðlabankinn setur nýtt met í gjaldeyriskaupum

marpng-1.jpg
Auglýsing

Gjald­eyr­is­kaup Seðla­banka Íslands í júlí voru þau mestu í einum mán­uði frá upp­hafi. Alls keypti bank­inn 265 millj­ónir evra á milli­banka­mark­aði í mán­uð­in­um. Hlut­deild hans á milli­banka­mark­aði var ríf­lega 61 pró­sent. Til sam­an­burðar keypti Seðla­bank­inn 201 milljón evra á milli­banka­mark­aði í júní. Það var þá langstærstu gjald­eyr­is­kaup bank­ans á einum mán­uð­um.

Frá þessu greinir grein­ing­ar­deild Íslands­banka í dag. Miðað við skráð gengi krónu gagn­vart evru í dag eru 265 millj­ónir evra jafn­virði um 39 millj­arða króna.

Í umfjöllun grein­ingar Íslands­banka kemur fram að það sem af er ári hafi Seðla­bank­inn keypt 816 millj­ónir evra á milli­banka­mark­aði og bætt við gjald­eyr­is­forða sinn. Það er 140 pró­sent aukn­ing frá síð­asta ári þegar bank­inn keypti 340 millj­ónir evra á fyrstu sjö mán­uðum árs­ins. Ríf­lega helm­ingur kaupanna í ár er gerður í júní og júlí. Það end­ur­speglar mikið hreint gjald­eyr­is­flæði til lands­ins í þessum mán­uð­um. Mik­ill vöxtur ferða­þjón­ustu skýrir stóran hluta inn­flæð­is­ins.

Auglýsing

Fleira kemur þó til, segir grein­ing Íslands­banka. „Vís­bend­ingar eru um að hreint inn­flæði vegna beinnar fjár­fest­ingar gæti verið að vaxa, enda skriður að kom­ast á ýmis fjár­fest­ing­ar­verk­efni í iðn­aði og dæmi eru einnig um sölu inn­lendra fyr­ir­tækja fyrir gjald­eyri. Þar að auki bendir ýmis­legt til inn­flæðis tengt verð­bréfa­fjár­fest­ingum það sem af er sumri.“ Útlit er fyrir áfram­hald­andi inn­flæði gjald­eyris á næst­unni.

Forð­inn stækkar en greiddu niður erlendar skuldir



Grein­ing Íslands­banka bendir á að þrátt fyrir gjald­eyr­is­kaup Seðla­bank­ans í júlí er gjald­eyr­is­forð­inn í heild að öllum lík­indum minni í dag en hann var í lok júní. Þá nam jafn­virði hans um 605 millj­örðum króna. Ástæðan er úttekt rík­is­sjóðs af gjald­eyr­is­reikn­ingi sínum í Seðla­bank­anum til að standa straum af kaupum á eigin skulda­bréfum í Banda­ríkja­doll­ur­um. „Þau bréf voru raunar gefin út til þess að afla gjald­eyris fyrir forða Seðla­bank­ans, og má því segja að verið sé að skila að hluta til skuld­setta hluta gjald­eyr­is­forð­ans með end­ur­kaup­unum á sama tíma og hreinn gjald­eyr­is­forði stækk­ar,“ segir í grein­ingu bank­ans.

Fjallað var um nið­ur­greiðslu skuld­anna í Kjarn­anum í gær. Ríks­sjóður keypti í fyrra­dag eigin skulda­bréf, útgefin árið 2011 í doll­ur­um, að and­virði 400 millj­ónir króna að nafn­virð­i. ­Með kaup­unum grynnkar á erlendum skuldum rík­is­sjóðs, en sam­kvæmt svörum Seðla­bank­ans við fyr­ir­spurn Kjarn­ans þá not­aði rík­is­sjóður inn­stæður sínar í erlendum gjald­eyri hjá Seðla­bank­anum til þess að greiða fyrir end­ur­kaup­in. Gjald­eyr­is­forð­inn lækkar því sem nemur end­ur­kaup­un­um.

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None