Spyr hvernig Ragnheiði Elínu „datt það í hug“ að ráða Hörð án auglýsingar

RAgnheidur-elin.jpg
Auglýsing

Ragn­heiður Elín Árna­dótt­ir, iðn­að­ar- og við­skipta­ráð­herra, segir að litið hafi verið til for­dæmis frá síð­ustu rík­is­stjórn þegar tekin var ákvörðun um það að ráða Hörð Þór­halls­son sem fram­kvæmda­stjóra nýrrar Stjórn­stöðvar ferða­mála án aug­lýs­ing­ar.

Þetta sagði Ragn­heiður Elín þegar Katrín Júl­í­us­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, spurði hana um það hvers vegna Hörður hefði verið ráð­inn. „Hvernig datt ráð­herr­anum það í hug að gera þess­ari mik­il­vægu atvinnu­grein það að leggja af stað í þennan leið­angur með því að ráða yfir þetta verk­efni, án aug­lýs­ing­ar, aðila fyrir tvær millj­ónir króna á mán­uði? Verra upp­haf á leið­angri er ekki hægt að hugsa sér,“ sagði Katrín.

Ragn­heiður Elín svar­aði ekki þeirri spurn­ingu beint. „Varð­andi fram­kvæmda­stjór­ann þá er þetta sam­starfs­vett­vangur rík­is­ins og grein­ar­innar eins og hér kom fram og þá er því til að svara kannski fyrst og síð­ast að það var vilji okkar til þess að láta þetta verk­efni fara strax af stað að finna hent­ugan aðila og það kom ekki síður frá sam­tökum ferða­þjón­ust­unnar sú krafa,“ sagði hún.

Auglýsing

„Ég verð að segja að það var meðal ann­ars litið til for­dæma sem voru sett hér á síð­asta kjör­tíma­bili þar sem að sam­starf ríkis og atvinnu­grein­ar­innar í verk­efni sem að fyr­ir­spyrj­andi þekkir vel þar sem að stjórn­ar­for­maður Inspired by Iceland var ráð­inn án aug­lýs­ingar og samn­ingar við hann fram­lengdir ítrekað án aug­lýs­ing­ar. Ég reyndar breytti því verk­lagi og núna erum við með það inn­an­húss en þetta er sann­ar­lega for­dæmi sem litið var til í þessu sam­heng­i,“ sagði Ragn­heiður Elín.

Ráðn­ing Harðar hefur verið umdeild, enda var hann ráð­inn til starfs­ins án þess að það væri aug­lýst, er með tvær millj­ónir króna á mán­uði, auk þess sem hann hefur ekki reynslu af ferða­mál­um. Hann hefur und­an­farin ár starfað hjá Act­a­v­is.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None