Sigmundur Davíð segir að Ísland hefði getað orðið gjaldþrota ef það hefði gengið í ESB

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra segir að Ísland hefði getað orðið gjald­þrota ef landið hefði gengið í Evr­ópu­sam­bandið (ES­B). Hann telur að Ísland hefði getað lent í sama lang­vinna efna­hag­hrun­inu Grikk­land eða í sama opin­bera skulda­klafa og Írland lenti í þegar írska ríkið tók yfir slæmar skuldir írskra einka­banka, ef aðild­ar­um­sókn Íslands hefði leitt til inn­göngu í sam­band­ið. Þetta kemur fram í við­tali við Sig­mund Davíð í vef­miðl­in­um Polit­ico.eu sem birt var í dag. Þar segir for­sæt­is­ráð­herr­ann einnig í raun ó­mögu­legt að Ísland muni ganga í Evr­ópu­sam­bandið í bráð.

Rík­is­stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna sótti um að­ild að sam­band­inu árið 2009 en við­ræð­urnar voru settar á ís undir lok ­valda­tíma henn­ar. Núver­andi rík­is­stjórn hætti síðan við­ræð­unum alfarið og hef­ur lýst því skýrt yfir að hún hafi engan áhuga á inn­göngu. Óljóst er hins veg­ar hvort umsóknin hafi form­lega verið dregin til baka.  

Sig­mundur Davíð segir við Polit­ico að hann sé nokkuð viss um að efna­hags­bati Íslands hefði ekki orðið ef landið væri hluti af Evr­ópu­sam­band­in­u. „Við hefðum meira að segja getað farið í hina átt­ina og orðið gjald­þrota ­rík­i[...]Ef allar þessa skuldir hefðu verið í evr­um, og við hefðum þurft að ­gera það sama og Írar og Grikkir, og taka ábyrgð á skuldum föllnu bank­anna okk­ar. Það hefði verið skelfi­legt fyrir okkur efna­hags­lega“. Þess í stað sé Ísland ein helsta vel­gengn­issaga eft­ir­hrunsár­anna í heim­in­um.

Auglýsing

Sig­mundur Davíð segir að helstu rök­semd­ar­færslan fyr­ir­ að­ild­ar­um­sókn­inni, þegar hún var lögð fram árið 2009, hafi verið sú að Ísland þyrft­i að ganga í Evr­ópu­sam­bandið vegna efna­hags­legra ástæðna. Aðild hafi alltaf ver­ið ­sett um sem efna­hags­lega mik­il­væg spurn­ing. „Nú finnst fólki það vera búið að fá svar við henni. Íslenskur efna­haur hefur gengið mun betur en efna­hag­ur ­Evr­ópu­sam­bands­ins[...]Við höfum séð mik­inn bata á síð­ustu tveimur árum á með­an að Evr­ópu­sam­bandið stendur enn frammi fyrir vand­ræðum og áfram­hald­andi kreppu“.

Hann segir að strax þegar slaknað hafi á upp­haf­leg­u ör­vænt­ingu þjóð­ar­innar vegna efna­hags­vand­ræð­anna hafi blasað við að Ísland sé í góðum málum eitt og sér. Landið sé hluti af EES-­svæð­inu og það sé eins nálægt ­Evr­ópu­sam­band­inu og Ísland vilji vera. „Ég held að það sé mjög ólík­legt, og raunar ómögu­legt, að Ísland mun ganga í sam­bandið í bráð,“ segir Sig­mund­ur Da­víð við Polit­ico.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None