Ríkið vill endurskoða öll fjárhagsleg samskipti við kirkjuna

kirkja_althingi.jpg
Auglýsing

Þjóð­kirkjan fær 370 millj­ónir auka­lega af fjár­auka­lögum sam­kvæmt til­lögu meiri­hluta fjár­laga­nefnd­ar, sem var lögð fram á Alþingi í dag. Fram­lagið er háð því kirkjan „skuld­bindi sig til þess að hefja þeg­ar þegar samn­inga­við­ræður um end­ur­skoðun kirkju­jarða­sam­komu­lags­ins sem feli í sér end­ur­skoðun allra fjár­hags­legra sam­skipta ríkis og kirkju (þ.m.t. hvað varðar sókn­ar­gjöld, jöfn­un­ar­sjóð sókna, fram­lög til kirkju­mála­sjóðs og Kristni­sjóðs) með veru­lega ein­földun þess­ara sam­skipta og hag­ræð­ingu að mark­mið­i.“ 

Gert er ráð fyrir því að þess­ari end­ur­skoðun á fjár­hags­legum sam­skiptum rík­is­ins og þjóð­kirkj­unnar verði lokið fyrir lok febr­úar á næsta ári. 

Fram­lagið til Þjóð­kirkj­unnar er rök­stutt með því að reiknað sé sam­kvæmt upp­haf­legu kirkju­jarða­sam­komu­lagi, og þar með verði allar aðhalds­kröfur sem gerðar hafa verið til kirkj­unnar frá 2009 verði aft­ur­kall­aðar árið 2015. 

Auglýsing

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar leggur einnig til 3,5 millj­arða króna hækkun á fjár­auka­lög­um, sem fari í að mæta áhrifum nýgeng­inna gerð­ar­dóma um kjör hjúkr­un­ar­fræð­inga, félags­manna BHM og vegna kjara­samn­inga sem voru gerðir á seinni hluta þessa árs. Alls leggur meiri­hluti nefnd­ar­innar til að útgjöld hækki um fimm millj­arða króna. Aðrar helstu breyt­ingar sem lagðar eru til er hækkun til sjúkra­trygg­inga, sem nemur 835 millj­ónum króna. Þá hækka vaxta­gjöld um 421 milljón og fram­lög til jöfn­un­ar­sjóðs sveit­ar­fé­laga hækkar um 215 millj­ón­ir. 

Betri afkoma en ætlað var í fjár­lög­um 

Tvær meg­in­skýr­ingar eru sagðar á því að tekju­á­ætlun fjár­laga er hækkuð um sam­tals 31,7 millj­arða kr. í breyt­ing­ar­til­lög­unni. „Ann­ars vegar hafa áhrif kjara­samn­inga, hátt atvinnustig og hag­stæðar þjóð­hags­horf­ur ­leitt til þess að nú er áætlað að skattar á tekjur og hagnað bæði ein­stak­linga og fyr­ir­tækja ­leiði sam­tals til 15,1 millj­arðs kr. hækk­unar frá fjár­lög­um. Hins vegar er nú fyr­ir­séð að arð­greiðslur í heild hækka um 10,2 millj­arða kr. frá fjár­lög­um. Þar munar lang­mest um arð­greiðslur frá Lands­banka Íslands sem nema um 15 millj­örðum kr. Á móti vegur reynd­ar lægri arð­greiðsla frá Seðla­banka Íslands­.“ 

Þá vekur athygli að virð­is­auka­skattur og aðrir skattar á vöru og þjón­ustu eru nú taldir munu skila um 6,6 millj­örðum króna meira en áætlað var í fjár­lög­um. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None