Fjöldi bensínstöðva í Reykjavík hefur tvöfaldast

Há álagning gerir olíufélögum kleift að halda úti miklu fleiri bensínstöðvum en raunin væri á virkum samkeppnismarkaði.

bensín
Auglýsing

Bens­ín­stöðv­um á Íslandi hefur farið fjölg­andi und­an­farin ár, þvert á þró­un víða ann­ars staðar í Evr­ópu. Þetta kemur fram í skýrslu ­Sam­keppn­is­eft­ir­lit­is­ins á olíu­mark­aðnum á Íslandi. Há álagn­ing olíu­fé­lag­anna gerir þeim kleift að halda úti svona mörgum bens­ín­stöðv­um, en ef það væri virkur sam­keppn­is­mark­aður á Íslandi ætti bens­ín­stöðv­unum að fækka um allt að 30%. 

Bens­ín­stöðv­um á Íslandi fjölg­aði um 18, sem eru rúm­lega 8%, milli áranna 2005 og 2014. Stærstur hluti fjölg­un­ar­innar var vegna þess að Atl­ants­olía stækk­aði á tíma­bil­inu, en Olís fjölg­aði líka sínum stöðv­um um 6.

Fjöld­i bens­ín­stöðva í Reykja­vík tvö­fald­að­ist á árunum 1983 til 2010 á meðan íbúum í Reykja­vík fjölg­aði um 35% á sama tíma­bil­i. Þetta þýðir að færri íbúar eru um hverja bens­ín­stöð, eða tæp­lega 2.700 manns, á meðan að ein bens­ín­stöð var fyr­ir­ hverja fjögur þús­und íbúa árið 1983. Á Ak­ur­eyri eru þrettán bens­ín­stöðv­ar, sem gerir eina bens­ín­stöð ­fyrir hverja 1.400 íbúa.

Auglýsing



Það er há álagn­ing sem gerir olíu­fé­lögum kleift að halda úti­ fleiri bens­ín­stöðvum en ann­ars, segir Sam­keppn­is­eft­ir­lit­ið. Eins og Kjarn­inn hefur greint frá segir eft­ir­litið að álagn­ing á bensín hafi auk­ist um 19% og á dísel um 50% á und­an­förnum árum. Ef að álagn­ing væri í sam­ræmi við heil­brigðan markað þar sem ekki eru sam­keppn­is­skað­andi aðstæður myndi bens­ín­stöðvum fækk­a um allt að 30% að mati Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Á virkum mark­aði hefði þetta átt að ger­ast í kjöl­far hruns­ins ­vegna þess að þá minnk­aði eft­ir­spurn eftir elds­neyti og ­fyr­ir­tækin áttu í erf­ið­leik­um. Það hefði átt að auka ­sam­keppni um við­skipti, sem hefði leitt til lægri álagn­ingar og ó­hag­kvæmum bens­ín­stöðvum hefði verið lok­að. Mik­ill fjöld­i bens­ín­stöðva bendir hins vegar til þess að sam­keppni sé skert ­vegna þess að þau stundi sam­hæfða hegð­un. 



Bens­ín­stöðv­um hefur fækkað í tólf af sextán Evr­ópu­löndum sem vísað er til í skýrsl­unni, og mest fækkun verið á Ítal­íu, í Frakk­landi og Bret­landi, en í síð­ast­nefnda land­inu hefur bens­ín­stöðvum fækk­að um 20% á átta árum. 

Selja líka minna bensín

Að með­al­tali selst líka minna af bens­íni á hverri bens­ín­stöð en ger­ist í helstu sam­an­burð­ar­löndum Íslands. Í Nor­egi og í Sví­þjóð er gegn­um­streymi elds­neytis rúm­lega tvö­falt meira en á Íslandi. Þetta á líka við þegar dreif­býlli svæði eru tekin út fyrir sviga og aðeins er skoðað ástandið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Samt eru fáir íbúar um hverja bens­ín­stöð og gegn­um­streymið lít­ið. 

Reykja­vík gagn­rýnd fyrir að tak­marka fjölda lóða fyrir bens­ín­stöðv­ar 

Eftir þessa miklu fjölgun bens­ín­stöðva í Reykja­vík hefur borgin tekið upp þá stefnu að tak­marka fjölda lóða undir bens­ín­stöðv­ar. Þetta er hins vegar líka gagn­rýnt í skýrslu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, vegna þess að þetta er talið tor­velda aðgang nýrra keppi­nauta að elds­neyt­is­mark­aðn­um. Það hefur einnig skað­leg áhrif á mark­að­inn. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None