365 heldur sýningarrétti á enska boltanum - Síminn bauð líka

fótbolti
Auglýsing

Fjöl­miðla­fyr­ir­tækið 365 hefur náð samn­ingum við ensku úrvalds­deild­ina um að sýna áfram frá enska bolt­anum á spor­trásum sín­um. Nýi samn­ing­ur­inn tekur gildi næsta sumar og gildir í þrjú ár. Frá þessu er greint á Vísi.­is. Sím­inn bauð einnig í enska bolt­ann, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans. 

365 hefur sýnt frá enska bolt­anum síð­ast­lið­inn níu tíma­bil og mun nú gera það að minnsta kosti til árs­ins 2019. 

Útboð vegna enska bolt­ans fór fram í nóv­em­ber og var ljóst að hörð sam­keppni yrði um sýn­ing­ar­rétt­inn milli 365 og Sím­ans, sem er orð­inn virkur þátt­tak­andi á fjöl­miðla­mark­aði eftir sam­ein­ingu sína við Skjá­Einn fyrr á þessu ári. Sím­inn hefur þegar tryggt sér sýn­ing­ar­rétt­inn af Evr­ópu­keppn­inni í knatt­spyrnu, sem fram fer í Frakk­landi næsta sum­ar, og var búist við að fyr­ir­tækið myndi gera harða atlögu að því að tryggja sér enska bolt­ann líka.

Auglýsing

Ekki er til­greint hver verð­mið­inn á enska bolt­anum var í frétt Vís­is.­is. Á Norð­ur­lönd­unum hefur verið hart barist um rétt­inn og búist var við því að met­upp­hæðir yrðu greiddar fyrir rétt til útsend­inga til þriggja ára frá hausti 2016. ­Sam­kvæmt skrif­um VG í Nor­egi, var reiknað með því að greiða þyrfti yfir millj­arð norskra króna, eða um fimmtán millj­arða króna á núver­andi gengi, fyrir rétt til útsend­ingar þar í landi en mik­ill áhugi er á enska bolt­anum í Nor­egi, eins og hér á landi. Sé mið tekið af þeirri upp­hæð sem nefnd er í umfjöllun VG, og hún sett hlut­falls­lega niður á íslenskan markað miðað við mun á íbúa­fjölda, þá gæti rétt­ur­inn á útsend­ingum enska bolt­ans hér á landi til þriggja ára hafa farið á tæpan millj­arð króna.

Enskir fjöl­miðlar telja að salan á alþjóð­legum sýn­ing­ar­rétti á enska bolt­anum muni skila ensku úrvals­deild­inni þremur millj­örðum punda á samn­ings­tím­an­um, eða um 580 millj­örðum íslenskra króna. Það kemur til við­bótar við þá fjár­hæð sem greidd var fyrir inn­lenda rétt­inn á honum í byrjun árs. Þá var rétt­ur­inn fyrir árin 2016-2019 seldur fyrir 5,2 millj­arða punda. Það gera rúm­lega eitt þús­und millj­arðar íslenskra króna. Eina íþrótta­deildin í heim­inum sem þénar meira vegna seldra sjón­varps­rétta er banda­ríska NFL-­deild­in.

Því fá liðin 20 sem spila í deild­inni rúm­lega tvo millj­arða punda til skipt­anna á hverju ári sem samn­ing­ur­inn gild­ir. Það gerir um 100 millj­ónir punda á hvert lið að með­al­tali.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None