Birgittu leið „mjög illa“ þegar hún sat við hlið Jóns Gunnarssonar

birgitta jónsdóttir
Auglýsing

Birgitta Jóns­dótt­ir, þing­maður Pírata, sagði frá því á þingi í morgun að henni hefði liðið mjög illa þegar hún sat við hlið­ina á Jóni Gunn­ars­syni, þing­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­manni atvinnu­vega­nefnd­ar, á síð­asta þingi. „[Ég] gerði allt sem ég gat til að fá að vera flutt. Mig lang­aði oft ekki í vinn­una því mér leið svo illa við hlið­ina á þessum mann­i,“ sagði hún í morg­un. 

Hún hafði í gær­kvöldi skrif­að færslu á Face­book þar sem hún sagði að Jón myndi aldrei biðj­ast afsök­unar á sínum „dylgjum og mann­vonsku“ í garð Bjarkar Guð­munds­dóttur lista­manns. „Ég þurfti að sitja við hlið­ina á honum í heilt ár og þurfti nán­ast að leita mér áfalla­hjálpar vegna dóna­skapar hans enda er hann þekktur fyrir að tudd­ast áfram yfir allt og alla á þing­in­u.“ Í kjöl­far við­tals við Björk fyrir helgi og ummæla sem hún við­hafði um Sig­mund Davíð Gunn­laugs­son og Bjarna Bene­dikts­son spurði Jón að því hvort Björk borg­aði skatta hér á landi og sagði hana daufa til augn­anna. 

Jón kom fyrstur í ræðu­stól Alþingis í morgun til þess að lýsa yfir furðu sinni á ummælum Birgittu á Face­book. 

Auglýsing



Jón sagð­ist sjá ástæðu til þess að tala sér­stak­lega um þessi ummæli Birgittu. „Mér finnst þetta alvar­leg ummæli,“ sagði hann og sagði að hann hefði ekki fengið neinar athuga­semdir um fram­komu sína gagn­vart Birgittu frá for­seta þings­ins eða for­sætis­nefnd. Hann óskaði eftir því að hlut­ast yrði til um það að ummæli Birgittu yrði skoðuð og rann­sök­uð. Honum þætti leitt ef svo væri að þing­menn sem sætu við hlið hans þyrftu að leita sér áfalla­hjálpar eftir það. 

Í kjöl­far þess kom Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður Vinstri grænna, í ræðu­stól og sagð­ist hafa orðið fyrir miklum von­brigðum með ræðu Jóns. „Ég hélt að hann ætl­aði að koma upp og lýsa iðrun vegna ummæla sinna um Björk Guð­munds­dótt­ur. [...] Mér fannst það nú ákveðið hámark á súr­r­eal­ism­anum að í stað þess kom hátt­virtur þing­maður upp og krafð­ist afsök­un­ar­beiðni frá Birgittu Jóns­dótt­ur.“ Jón hefði í stað þess að biðj­ast sjálfur afsök­unar ráð­ist á sam­þing­mann sinn. 

Það var þá sem Birgitta kom í ræðu­stól og sagði frá því að henni hefði liðið mjög illa sitj­andi við hlið Jóns. Bæði for­seti þings­ins, margir þing­menn og skrif­stofu­stjóri Alþingis hefðu vitað af því. Hún hafi að lokum fengið leyfi til að skipta um sæti ef hún fyndi annan þing­mann til að skipta um sæti við sig. Eng­inn hafi feng­ist til þess. 

Áður en form­leg dag­skrá þings­ins hófst komu svo bæði Jón og Birgitta aftur í ræðu­stól til að lesa upp þau ummæli sem hvort um sig hafði við­haft á net­inu. Jón sagði að hann bæri mikla virð­ingu fyrir lista­kon­unni Björk, en það hljóti að mega svara „þessu fólki“ þegar það kysi að tala niður til for­sæt­is- og fjár­mála­ráð­herra. 

Birgitta hafði rétt hafið að lesa sín ummæli, sem lesa má hér í færsl­unni að ofan, þegar fussað var úr þing­sal. Hún stopp­aði og spurði hver hefði fuss­að, og Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra sagð­ist hafa gert það. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None