10 mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

trump
Auglýsing

Vef­síða Business Insider tekur dag­lega saman lista yfir tíu mik­il­væg­ustu hlut­ina sem eru að ger­ast í heim­inum í dag, að þeirra mati. Mál­þóf eða ekki mál­þóf á Alþingi Íslend­inga kemst ekki á blað að þessu sinni, en það gerir ýmis­legt annað áhuga­vert. 

  1. Don­ald Trump finnst það mik­ill heiður að Vla­dimír Pútín Rúss­lands­for­seti hafi lýst yfir aðdáun á hæfi­leikum Trump. 
  2. Stór­fyr­ir­tækið Apple hefur til­kynnt að Jeff Willi­ams hafi verið hækk­aður í tign og sé nú rekstr­ar­stjóri (COO). Willi­ams var áður yfir­maður birgða­keðju fyr­ir­tæk­is­ins, sem er sama starf og núver­andi for­stjór­inn Tim Cook sinnti þegar Steve Jobs var for­stjóri. 
  3. JPMorgan fjár­festir nú grimmt í næstu kyn­slóð tækni og slíkar fjár­fest­ingar eru á meðal helstu for­gangs­fjár­fest­inga á næsta ári, sam­kvæmt minn­is­blaði sem Business Insider hefur séð. 
  4. Martin Shkreli var hand­tek­inn af alrík­is­lög­regl­unni í Banda­ríkj­unum í gær, grun­aður um svik. Hann komst í frétt­irnar fyrr á árinu þegar hann hækk­aði verð á lyfj­um, m.a. malar­íu­lyfj­um, upp úr öllu vald­i. 
  5. Vog­un­ar­sjóðs­stjór­inn Jim Chanos varar OPEC ríkið við og segir að þau eigi að dæla út olíu núna vegna þess að eftir 15 ár gæti hún verið lít­ils virð­i. 
  6. Fjöldi fólks sem hefur þurft að yfir­gefa heim­kynni sín á þessu ári er lík­lega miklu meira en 60 millj­ón­ir, sem er met. Þetta segja Sam­ein­uðu þjóð­irn­ar, og segja helstu ástæður vera stríðið í Sýr­landi og átök á öðrum stöð­u­m. 
  7. Amazon gæti fljót­lega farið að leigja að minnsta kosti 20 fragt­flug­vélar með það mark­mið að fyr­ir­tækið sjái sjálft um slíka flutn­inga innan Banda­ríkj­anna. 
  8. Repúblikan­inn Jeb Bush og hans fólk skoðar nú hvort hægt sé að draga til baka stuðn­ing við þann fram­bjóð­anda sem verður for­seta­fram­bjóð­andi flokks­ins á end­an­um, ef ske kynni að sá fram­bjóð­andi yrði Don­ald Trump. Venjan er að fram­bjóð­endur sem tapa styðji við þann sem vinn­ur, en þetta þykir merki um andúð Bush á Trump. 
  9. Tveir grun­aðir með­limir Íslamska rík­is­ins voru hand­teknir á stærsta flug­velli Ist­an­búl í Tyrk­landi, eftir að þeir reyndu að smygla að minnsta kosti 150 evr­ópskum vega­bréfum til Tyrk­lands. 
  10. 2016 verður hlýjasta árið nokkru sinni, sam­kvæmt nýrri spá frá bresku veð­ur­stof­unn­i. 

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None