Færsla ráðuneyta á Hafnartorg ekki rædd í ríkisstjórn

stjornarrad.jpg
Auglýsing

Mögu­legur samn­ingur um flutn­ing ráðu­neyta í nýbygg­ingu á Hafn­ar­torgi, og mögu­leik­inn á því að skipta á lóð rík­is­ins við Skúla­götu og lóð­inni á Hafn­ar­torgi, hafa ekki verið rædd í rík­is­stjórn Íslands. Það er ekki komið neitt mál til þess að sam­þykkja í rík­is­stjórn,“ segir for­sæt­is­ráð­herr­ann Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son um mál­ið. 

Svan­dís Svav­ars­dótt­ir, þing­maður VG, spurði Sig­mund Davíð um málið í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag. Hún minnti á það að sam­kvæmt for­seta­úr­skurði fari fjár­mála­ráð­herra með ráð­stöfun eigna rík­is­ins. Þá sé engin heim­ild til að ráð­stafa lóð rík­is­ins á nokkurn hátt í fjár­lög­um. „Vil ég spyrja hæst­virtan for­sæt­is­ráð­herra, hvaða laga­heim­ild­ir ­styðst hann við þegar hann ráð­stafar rík­is­eignum á stjórn­ar­ráðs­reit?“ 

Sig­mundur Davíð sagði að það eina sem gerst hefði væri að for­sæt­is­ráðu­neytið sam­þykkti að eiga við­ræður um aðkomu að mál­inu, en það væri allt opið. Hins vegar væri ekki óeðli­legt að skoða mál­ið, og það væri ekki í fyrsta skipti sem það væri gert í ljósi hús­næð­is­þarfa stjórn­ar­ráðs­ins. Sú þörf er orðin mjög knýj­andi núna, vegna þess að að minnsta ­kosti for­sæt­is­ráðu­neytið er að missa hús­næðið sem megnið af ráðu­neyt­inu hefur haft aðsetur í og þar að leið­and­i ó­hjá­kvæmi­legt að leita leiða til þess að leysa úr því.“

Auglýsing

Ef til samn­inga um maka­skipti á lóð­um, eða leigu­samn­ings, kæmi myndi það fara eftir þeim reglum „sem almennt gildi um slíkt.“

Svan­dís sagði þá vænt­an­lega rétt skilið hjá henni að málið hefði ekki verið rætt í rík­is­stjórn og ekki hefði verið rætt við ráðu­neytið sem á að fara með eignir rík­is­ins. Auk þess sé ekki heim­ild í fjár­lög­um. Sig­mundur sagði hins vegar að álykt­anir Svan­dísar væru alrang­ar, því haft hefði verið sam­ráð við fjár­mála­ráðu­neytið um hús­næð­is­mál stjórn­ar­ráðs­ins á und­an­förnum árum og einnig núna. Hann ítrek­aði að ef til samn­inga kæmi myndi það ger­ast eftir regl­u­m. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None