Sjónum beint að flóttabörnum - minnst 10 þúsund börn týnd í Evrópu

Flóttamenn
Auglýsing

Minnst 10 þús­und flótta­börn hafa horfið eftir að hafa komið til Evr­ópu að sögn evr­ópsku lög­regl­unnar Europol. Mörg eru talin vera fórn­ar­lömb mansals, enda séu skipu­lögð glæpa­sam­tök að herja á flótta­menn.

Brian Don­ald, yfir­maður hjá Europol, ­segir að fimm þús­und börn hafi horfið á Ítalíu og þús­und ­séu týnd í Sví­þjóð. „Það er ekki fjarri lagi að segja að við séum að leita að yfir tíu þús­und börn­um. Þau eru ekki öll fórn­ar­lömb glæpa, sum gætu verið komin til­ ­fjöl­skyldu­með­lima. Við vitum bara ekki hvar þau eru, hvað þau eru að gera eða með hverjum þau eru,“ segir hann við The Obser­ver í Bret­landi.

Flótta­börn sem koma til Evr­ópu án ­for­ráða­manna eru eitt stærsta vanda­málið sem teng­ist flótta­manna­krís­unni. Þau eru við­kvæm­asti hópur þeirra sem kom­a til Evr­ópu. Don­ald segir að flótta­börn sem komið hafi til Evr­ópu und­an­farið telji 270 þús­und. Þau séu ekki öll skráð inn í álf­una, og ekki séu öll án fylgd­ar, en mik­ill hluti þeirra sé það samt lík­lega. Því sé var­lega áætlað að segja 10 þús­und ­börn séu týnd.

Auglýsing

Greint var frá því á föstu­dags­kvöld að um 100 grímu­klæddir menn hafi komið saman í mið­borg ­Stokk­hólms, ráð­ist á fólk sem leit út fyrir að vera af er­lendum upp­runa og hvöttu til árása á börn sem komið hafa til­ Sví­þjóðar sem flótta­menn. Einnig fund­ust bæk­lingar þar sem hvatt var til þess að fólk réð­ist á börn sem eru á flótta án ­fylgd­ar.

Þarf millj­arða til að kom­a flótta­börnum í skóla 

Í breska fjöl­miðl­inum Guar­dian hef­ur ­sjónum þó einnig verið beint að þeim börnum sem eru á flótta utan Evr­ópu. Í dag birt­ist grein eftir frið­ar­verð­launa­hafann Malölu Yousafzai og sýr­lensku flótta­kon­una Muzoon Almelleh­an. Þar hvetja þær til þess að ríkar þjóðir heims verji 1,4 millj­örðum punda til þess að tryggja að flótta­börn kom­ist í skóla. Þær hitt­ust fyrst í flótta­manna­búðum í Jórdan­íu, þar ­sem sýr­lenskar stúlkur niður í 12 ára eru giftar eldri mönnum í þeirri von að það muni bjarga þeim frá fátækt og ofbeld­i. Flestar þessar stúlkur fari aldrei aftur í skóla.

Áður en stríðið í Sýr­landi hóf­st hafi hins vegar öll börn átt kost á 12 ára ókeypis skóla­göng­u, og læsi var 90%.

„Ríki á land­mær­unum eins og Jórdan­ía, Líbanon, Tyrk­land, Egypta­land og Írak hafa opn­að dyrnar og skól­ana sína fyrir sýr­lenskum börn­um, en hafa ekki ­burði til að hjálpa öll­um. Rík­ustu lönd heims hvetja flótta­menn til að vera áfram á því svæði í stað þess að koma til­ ­Evr­ópu, á meðan þau veita ekki fjár­magnið sem nágranna­rík­in þurfa til að takast á við krís­una.“ 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None