Fjármálaráðuneytið vísar gagnrýni Vigdísar Hauksdóttur á bug

vigdís hauksdóttir
Auglýsing

Hluti gagn­anna um end­ur­reisn banka­kerf­is­ins er trún­að­ar­gögn vegna þess að þau hafa að geyma við­kvæmar fjár­hags­upp­lýs­ingar um til­greinda ein­stak­linga og lög­að­ila sem fjár­mála­ráðu­neytið má ekki gera opin­ber. Hluti gagn­anna fjallar einnig um lög­skipti sem ráðu­neytið er ekki aðili að, þótt afrit af þeim séu að finna í ráðu­neyt­inu. Þá er það ekki á ábyrgð fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins hvernig farið er með trún­að­ar­gögn sem send eru til Alþing­is, heldur á ábyrgð þings­ins. 

Þetta kemur allt fram í til­kynn­ingu frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu, sem svarar með því gagn­rýni frá Vig­dísi Hauks­dótt­ur, þing­manni og for­manni fjár­laga­nefndar Alþing­is, frá því um helg­ina.

Í Morg­un­blað­inu um helg­ina sagði Vig­dís að verið væri að slá „svaka­legri leynd“ yfir gögn um end­ur­reisn banka­kerf­is­ins. 

Auglýsing

Gögn um stofnun nýju bank­anna eru aðgengi­leg þing­mönnum en engum öðrum, en Vig­dís fann að því í blað­inu um helg­ina, og aftur í sjón­varps­þætt­inum Eyj­unni í gær, að blað­síður vant­aði í gögn­in. Meðal ann­ars væri þar um að ræða fund­ar­gerð­ir. Hún segir aug­ljóst að átt hafi verið við gögn­in, sem sé refsi­vert og alvar­legt. „Svo þegar þau ber­ast þing­inu þá er það með þeim hætti að það er slegin á það trún­að­ur. Mjög líkt og gert var í Ices­a­ve-­mál­in­u. Þegar þetta ger­ist svo núna í annað sinn að það séu send gögn til þings­ins og það merkt trún­aður og allir þing­menn hafa eft­ir­lits­skyldu með fram­kvæmda­vald­inu, þá get ég ein­fald­lega ekki sætt mig við það,“ sagði hún í Eyj­unn­i. 

Vig­dís sagð­ist í Morg­un­blað­inu hafa beðið um fund með for­seta þings­ins í þess­ari viku til að ræða þessi mál. „Það er rosa­lega skrýtið að fram­kvæmda­valdið skuli ­geta sett þetta skil­yrði gagn­vart ­þing­mönnum því alþing­is­menn all­ir hafa eft­ir­lits­skyldu með fram­kvæmda­vald­in­u.“ 

Tvær fund­ar­gerðir týnd­ar 

Fjár­mála­ráðu­neytið greinir einnig frá því að það hafi látið stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis hafa öll umbeðin gögn áframs fleiri minn­is­blöðum og vinnu­gögn­um. 

„Bent hefur verið á að tvær fund­ar­gerðir af fundum stýrinefndar um samn­inga við erlenda kröfu­hafa föllnu bank­anna liggi ekki fyr­ir. Það er rétt, en eins og áður hefur komið fram hafa þessar fund­ar­gerðir ekki fund­ist. Eftir ítrek­aða leit er það nið­ur­staða ráðu­neyt­is­ins að skýr­ingin sé sú að láðst hafi að halda fund­ar­gerð­irnar í fjar­veru rit­ara og þær því ekki til, sem er vissu­lega mið­ur,“ segir í svar­inu.

Þá segir ráðu­neyið líka að þess hafi alltaf verið gætt í hví­vetna að virða lög og reglur sem gilda um með­ferð opin­berra gagna. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None