Sigmundarleysi Samfylkingar, ungur aðstoðarmaður og sveifluríki

Málefni líðandi stundar eru krufin ofan í kjölinn í Hlaðvarpi Kjarnans í vikunni. Landamæri eru ekki virt, enda koma Sviss, Bandaríkin, Ísafjörður, Frakkland og Reykjavík öll við sögu.

Hlaðvarp
Auglýsing



Aðstoð­ar­maður blæs á gagn­rýni

Nýjasta við­bótin í hlað­varps­flóru Kjarn­ans, Útvarp Ísa­fjörður, varð fyrst fjöl­miðla í til að næla í við­tal við nýráð­inn aðstoð­ar­mann Gunn­ars Braga Sveins­sonar utan­rík­is­ráð­herra, Ísfirð­ing­inn Gauta Geirs­son. Hann hafði verið mikið í umræð­unni vik­una áður sökum ungs ald­urs og hafði ráð­herra verið gagn­rýn­inn fyrir að ráða sér svo reynslu­lít­inn aðstoð­ar­mann. Gauti sagð­ist alltaf hafa haft mik­inn áhuga á utan­rík­is­málum og sagði nauð­syn­legt að gefa ungu fólki meiri tæki­færi. Hann hætti að versla í H&M eftir að hann heim­sótti fata­verk­smiðju fyr­ir­tæk­is­ins í Kam­bó­díu á ferð sinni um heim­inn.  

Banda­ríkin eru flók­in 

Magnús Jón­as­son ræddi við Birgi Þór Harð­ar­son í Hlað­varp­inu um for­seta­kosn­ing­arnar í Banda­ríkj­un­um. Magnús er mik­ill áhuga­maður um banda­ríska póli­tík og er með allt á hreinu sem við­kemur hinu flókna kosn­inga­ferli sem er við lýði vest­an­hafs. Hann fer yfir þann fjölda lýð­fræði­breytna sem ein­kennir Nevada og Norð­ur­-Kar­ólínu þegar við­kemur upp­skipt­ingu Demókrata og Repúblik­ana.  

Auglýsing

Gaman í vinn­unni

Freyr Eyj­ólfs­son, útsend­ari Kjarn­ans í Par­ís, ræddi við Aðal­stein Leifs­son, for­stöðu­mann EFTA, á kaffi­húsi í Genf. Í nýjasta þætt­inum af Undir smá­sjánni spjalla þeir um brenn­andi áhuga Aðal­steins á fagi sínu, en hann er einnig lektor í samn­inga­tækni við Háskól­ann í Reykja­vík. Hann segir samn­inga ekk­ert annað en sam­eig­in­lega ákvarð­ana­töku - það sé hins vegar leiðin að þeim sem sé stundum flók­in. 

FBI vill inn í iPhone

Apple komst enn á ný í fréttir í vik­unni þegar fregnir bár­ust af bar­áttu fyr­ir­tæk­is­ins við banda­rísku Alrík­isr­lög­regl­una, FBI, um aðgang yfir­valda að gögnum á iPhone sím­um. Í Tækni­varp­inu fengu þeir Gunn­laugur Reynir og Andri Valur hann Jón Heiðar Þor­steins­son, frá Stuck­in­iceland.com og Advania, í heim­sókn þar sem þeir ræddu meðal ann­ars þetta mál. 

Sig­mund­ar­leysi Sam­fylk­ing­ar­innar

Karlar eru körlum best­ir. Þetta er nið­ur­staðan sem þau Þór­unn Elísa­bet Boga­dóttir og Þórður Snær Júl­í­us­son, aðstoð­ar­rit­stjóri og rit­stjóri Kjarn­ans, komust að þegar þau ræddu í Kviku vik­unnar hina enda­lausu skekkju í kynja­hlut­föllum innan fjár­mála­kerf­is­ins. Þau krufu líka vanda Sam­fylk­ing­ar­innar og telja að flokk­ur­inn þurfi að finna „sinn Sig­mund Dav­íð“ eins og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn gerði forðum þegar Sig­mundur var kjör­inn for­mað­ur. Leiðin lá upp á við fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn eftir það.  

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiHlaðvarp
None