Bjarni vissi ekki af Tortóla-félaginu

Bjarni Benediktsson hafði ekki vitneskju um það að Anna Sigurlaug Pálsdóttir, eiginkona forsætisráðherra, ætti félagið Wintris á Tortóla.

Bjarni Benediktsson
Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra vissi ekki af því að Anna Sig­ur­laug Páls­dótt­ir, eig­in­kona Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra ætti erlenda félagið Wintris á Tortóla. Þetta kom fram á þingi í morg­un. 

Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra hélt því fram í Morg­un­út­varp­inu í morgun að félag Önnu Sig­ur­laugar hafi alltaf verið öllum ljóst og aldrei hafi verið reynt að fela það. 

Bjarni var spurður um málið í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi. Ótt­arr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíð­ar, spurði Bjarna um það hvort hann hefði haft vit­neskju um mál­ið. „Það hafði ég ekki,“ sagði Bjarni ein­fald­lega.

Auglýsing

Ótt­arr tók fram að auð­vitað hefði verið heppi­legra að Sig­mundur Davíð væri sjálfur á staðnum og gæti svarað spurn­ingum þing­manna. Sig­mundur var hins vegar ekki í þingsaln­um, og var ekki einn þeirra ráð­herra sem voru til taks í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma. 

Bjarni sam­sinnti því að þetta væri óheppi­legt, og sagði jafn­vel óeðli­legt að spurn­ingum sem vörð­uðu Sig­mund Davíð væri beint til hans. Það væri ekki gott að vera settur í þá stöðu að svara fyrir mál sem aðrir væru betur til þess fallnir að svara fyr­ir. 

 „Ég verð að segja fyrir mitt leyti að mér finnst að for­sæt­is­ráð­herra verði sjálfur að gera grein fyrir því hvernig þessu máli var fyr­ir­kom­ið, og við hljótum síðan á end­anum að mæla þau mál út frá þeim lögum og reglum sem um efnið gilda.“ Hann hafi ekki séð að nokkuð benti til þess að lög eða reglur hefðu verið brotn­ar. Hann væri ekki í nokk­urri stöðu til að segja að eitt­hvað óeðli­legt hafi verið á ferð­inni. Hann væri viss um að Sig­mundur Davíð myndi svara fyrir málið á þingi ef eftir því væri leit­að. 

Bjarni sagði það ánægju­legt og mik­il­vægt að það sé sam­staða um siða­reglur í þing­inu. Ekki mætti gleyma því í hvaða til­gangi slíkar reglur væru sett­ar. „Að gera grein fyrir hags­munum sem kunna að vera til staðar og mik­il­vægt er að liggi fyrir og eftir atvikum geta haft áhrif á fram­gang mála hér í þing­in­u.“ 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None