Mikilvægt að bjóða upp á innanlandsflug frá Keflavík

Discover the World hefur dregið verulega saman áform sín um að fljúga beint milli London og Egilsstaða. Forstjórinn segir að innanlandsflug frá Keflavík gæti verið mikilvægt í því að stuðla að dreifingu ferðamanna.

flugvöllur
Auglýsing

Búið er að fella niður mik­inn ­meiri­hluta flug­ferða milli London Gatwick og Egils­staða í sum­ar, ­vegna þess að eft­ir­spurnin var ekki jafn­mikil og búist var við. ­Greint er frá þessu í frétt á vefnum Túrist­i.is.

Ferða­skrif­stofan Discover the World til­kynnti í haust að boðið yrði upp á beint flug á milli­ London og Egils­staða í sum­ar. Til stóð að fljúga frá lokum maí og út sept­em­ber og fara tvær ferðir í viku, en nú hefur ferð­un­um verið fækkað úr 35 í níu, og allar ferð­irnar verða í júlí og ágúst. Clive Stacey, for­stjóri og stofn­andi Discover the World, ­segir við Túrista að upp­haf­leg áætlun fyr­ir­tæk­is­ins hafi ver­ið of bjart­sýnt. „Eftir á að hyggja hefðum við átt að bjóða ­upp á styttri flug­á­ætlun strax frá upp­hafi þar sem hug­myndin um beint flug til Egils­staða hefur ekki fengið eins mik­inn hljóm­grunn og við áttum von á,“ segir hann. Bretar sem ferð­ist til Íslands­ vilji fara Gullna hring­inn og heim­sækja Reykja­vík og Bláa lón­ið, og því falli flug til Egils­staða ekki nógu vel að plö­un­m þeirra.

Í síð­ustu viku til­kynnt­i ­rík­is­stjórnin um veit­ingu 170 millj­óna króna til Flug­þró­un­ar­sjóðs á þessu ári, og að gert sé ráð fyrir því að sjóð­ur­inn hafi 300 millj­ónir króna til ráð­stöf­unar á hverju ári næst­u ár­in. Mark­miðið með sjóðnum er að koma á reglu­legu milli­landa­flugi um aðra flug­velli en Kefla­vík­ur­flug­völl, og stuðla þannig að dreif­ing­u ­ferða­manna. Stjórn sjóðs­ins verður skipuð sjö ein­stak­lingum og hún á að taka til starfa um miðjan apr­íl.

Auglýsing

Stacey segir að íslenska ­ferða­þjón­ustan verði í heild sinni að fjár­festa í mark­aðs­setn­ingu á afskekkt­ari svæðum ef það á að takast að breyta for­gangs­röðun ferða­manna. Hann segir að stuðn­ing­ur­inn sem ­rík­is­stjórnin hefur boðað sé skref í rétta átt, en að ­mik­il­vægt sé að skil­yrði fyrir styrkjum séu sveigj­an­leg og lag­i ­sig að mark­aðn­um. „Eftir því sem flug­leið­unum milli Bret­lands og Kefla­vík­ur­flug­vallar fjölgar þeim mun erf­ið­ara verður að ­bjóða upp á beint flug út á lands­byggð­ina frá Bret­landi. Ég tel því að inn­an­lands­flug frá Kefla­vík til staða eins og Ak­ur­eyr­ar, Ísa­fjarðar og Egils­staða gæti verið mik­il­vægt, ­sér­stak­lega utan háanna­tím­ans.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None