Aðalfundur Veiðifélags Laxár og Krákár, sem haldinn var í Rauðhólum í Laxárdal, 30. apríl 2016 skorar á yfirvöld umhverfismála, bæði á landsvísu og á sveitarstjórnarstigi, „að bregðast við því alvarlega ástandi sem lýst hefur verið í lífríki Laxár og Mývatns í Suður-Þingeyjarsýslu“. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá veiðifélaginu. Formaður stjórnar veiðifélagsins er Bragi Finnbogason.
„Lífríki Mývatns og Laxár hefur verið undir miklu álagi undanfarna áratugi og svæðið er á rauðum lista Umhverfisstofnunar fjórða árið í röð. Kúluskíturinn, sem aðeins finnst á einum öðrum stað í heiminum, er horfinn og botni Mývatns má líkja við uppblásinn eyðisand,“ segir í tilkynningunni.
Þá segir ennfremur að bleikjan hafi verið nánast friðuð undanfarin ár, til að koma í veg fyrir útrýmingu og sílastofn í sögulegri lægð. „Hornsílastofninn er í sögulegri lægð. Við rannsóknir síðasta sumar veiddust 319 síli en sambærilegar rannsóknir síðustu 25 ár hafa skilað 3.000-14.000 sílum. Hrunið í hornsílastofninum bitnar illa á urriðanum bæði í Laxá og vatninu. Draga verður verulega úr veiðum á honum í Mývatni í sumar. Bakteríugróður, sem Mývetningar kalla leirlos, fer vaxandi og hefur síðustu tvö sumur verið með fádæmum og langt yfir þeim heilsuverndarmörkum sem Alþjóða heilbrigðismálastofnunin miðar við í vötnum þar sem útivist er stunduð. Leirlos í svo miklu magni hefur mjög neikvæð áhrif á lífríki Laxár allt til sjávar, sem og upplifun veiðimanna á svæðinu,“ segir í tilkynningu veiðifélagsins.