Tíu staðreyndir um Guðrúnu Margréti Pálsdóttur

Guðrún Margrét Pálsdóttir gefur kost á sér til embættis forseta Íslands.
Guðrún Margrét Pálsdóttir gefur kost á sér til embættis forseta Íslands.
Auglýsing

1. Guð­rún Mar­grét er 57 ára, fædd í Reykja­vík þann 15. mars árið 1959
. 

2. Hún er menntuð sem hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur. Guð­rún Mar­grét var for­maður ABC barna­hjálp­ar, en hún starf­aði fyrir sam­tökin í 27 ár, þar af 23 ár launa­laust og var einn af stofn­endum þess. Hún var í fram­halds­námi í þró­un­ar­fræði þegar hún ákvað að fara í for­seta­fram­boð.

3. Hún býr í Garða­bænum með eig­in­manni sínum sem hún hefur verið gift í 29 ár og eiga þau saman þrjú börn. Eig­in­maður hennar er barna­barn Hann­esar Haf­stein, fyrsta ráð­herra Íslands. 

Auglýsing

4. Guð­rún Mar­grét hefur ekki mælst með yfir eitt pró­sent fylgi í skoð­ana­könn­un­um. 

5. Guð­rún Mar­grét hefur ferð­ast um sex heims­álfur og segir að hnatt­ferð sem hún fór í fyrir 30 árum hafi breytt lífi hennar var­an­lega. 
Árið 1985 seldi hún eigur sínar til að ferð­ast um heim­inn.

6. Hún er í þjóð­kirkj­unni
 og segir að Biblían og bænin veiti sér dag­legan inn­blást­ur, hvatn­ingu og hug­rekki.
 Hún vill halda reglu­legar bæna­stundir í Bessa­staða­kirkju. 

7. Guð­rún Mar­grét hlaut íslensku fálka­orð­una frá Ólafi Ragn­ari Gríms­syni for­seta árið 2004 fyrir líkn­ar­störf á alþjóða­vett­vangi.  


8. Guð­rún Mar­grét talar ágæta ensku, þokka­lega dönsku, er með góðan grunn í spænsku og ein­hvern grunn í þýsku, er fram kemur á kosn­inga­vef RÚV

9. Hún er áhuga­mann­eskja um skóg­rækt og berja­tínslu.

10. Verði hún kjörin for­seti ætlar hún að standa fyrir Góð­gerð­ar­viku þjóð­ar­innar þar sem allir leita leiða til að verða öðrum til góðs og safna fjár­magni til að blessa aðra. Guð­rún Mar­grét vill að afmæl­is­dagur Ólafs Ragn­ars Gríms­sonar verði skip­aður góð­gerð­ar­dag­ur. 

Fram­boðs­síða Guð­rúnar Mar­grétar - Face­book­síða Guð­rúnar Mar­grétar

Guðrún Margrét með fjölskyldu sinni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None