Júlíus Vífill sakar systkini sín um að draga sér fé foreldra þeirra

Fyrrverandi borgarfulltrúinn Júlíus Vífill Ingvarsson sakar syskini sín um að hafa dregið sér tugi milljóna af reikningum móður þeirra. Þau segja Panamasjóð hans vera sjóð foreldra þeirra.

júlíus vífill ingvarsson
Auglýsing

Júl­íus Víf­ill Ingv­ars­son sakar systk­ini sín um að hafa dregið sér tugi millj­óna af banka­reikn­ingi móður þeirra. Þetta gerir hann í við­tali við Morg­un­blaðið í dag. Í blað­inu bregst hann við umfjöllun Kast­ljóss í gær­kvöldi um hann og fjöl­skyld­una. 

Í Kasljósi í gær kom fram að tvö systk­ini Júl­í­usar og syst­ur­sonur hans segja að hann hafi við­ur­kennt fyrir þeim að í aflands­fé­lagi hans í Panama hafi verið pen­ingar upp­runir frá for­eldrum þeirra. Pen­ing­anna hafði móðir þeirra ásamt hluta fjöl­skyld­unnar leitað í rúman ára­tug. Um var að ræða sjóð í erlendum banka sem faðir þeirra, Ingvar Helga­son, hafði safnað umboðs­launum frá erlendum bíla­fram­leið­endum inn á alla tíð. 

Júl­íus Víf­ill segir í Morg­un­blað­inu í dag að honum þyki þáttur Kast­ljóss í gær hafa verið lág­punktur í frétta­flutn­ingi og hann hafi verið „yf­ir­fullur af rang­færsl­u­m.“ Hann seg­ist hafa leið­rétt margt í sím­tölum við stjórn­endur þátt­ar­ins en lít­ill áhugi hafi verið á því að fá „nema eina bjag­aða hlið á mál­in­u.“ Hann útskýrir ekki í hverju þessar rang­færslur felist. 

Auglýsing

Fram kom hins vegar í Kast­ljósi í gær að ítrekað hefur verið haft sam­band við bæði Júl­íus og bróður hans Guð­mund Ágúst, bæði í sím­tölum og með tölvu­pósti. Þar hafi verið óskað svara við ýmsum spurn­ingum um mál­ið, og þeim verið boðið að koma í við­tal, en þeir bræður hafi kosið að svara eng­u. 

Júl­íus Víf­ill sagði hins vegar í yfir­lýs­ingu í gær að ýmist væru ásak­anir systk­ina hans algjör ósann­ingi eða ómerki­leg ill­mælgi. Það sé ótrú­lega ófyr­ir­leitið að halda því fram að hann hafi gengið í eða sölsað undir sig sjóði í eigu ann­arra. 

Fram kom einnig í Kast­ljósi í gær að móðir systk­in­anna, Sig­ríður Guð­munds­dótt­ir, hefði sent bönkum í Evr­ópu og Banda­ríkj­unum bréf í leit sinni að þessum sjóði eig­in­manns síns eftir að hann var lát­inn og fjöl­skyldu­fyr­ir­tækið Ingvar Helga­son hafði verið selt fyrir lít­inn pen­ing. Júl­íus Víf­ill segir að það hafi verið erfitt að sjá systk­ini sín halda því fram að móðir þeirra hafi verið fjár­þurfi í ell­inni. „Hún var sem betur fer mjög vel efnum búin og skorti ekk­ert, en því miður þjáð í mörg ár af Alzheimer. Vænt­an­lega hefðu sömu ein­stak­lingar og tala með þessum hætti farið var­legar með fjár­muni hennar ef sú hefði verið raunin í stað þess að draga sér tugi millj­óna af banka­reikn­ingi henn­ar,“ segir hann í Morg­un­blað­inu í dag. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None