Níu manns búast við forsetavottorðum

Yfirkjörstjórnir eru nú í óða önn við að afhenda vottorð til forsetaframbjóðenda eftir talningu á meðmælendaskrám. Allt bendir til þess að níu frambjóðendur verði á kjörseðlinum í júní.

Sturla Jónsson, Hildur Þórðardóttir, Ástþór Magnússon, Guðni Th. Jóhannesson, Elísabet Kristín Jökulsdóttir, Guðrún Margrét Pálsdóttir, Andri Snær Magnason, Davíð Oddsson og Halla Tómasdóttir.
Sturla Jónsson, Hildur Þórðardóttir, Ástþór Magnússon, Guðni Th. Jóhannesson, Elísabet Kristín Jökulsdóttir, Guðrún Margrét Pálsdóttir, Andri Snær Magnason, Davíð Oddsson og Halla Tómasdóttir.
Auglýsing

Búist er við því að níu for­seta­fram­bjóð­end­ur, fimm karlar og fjórar kon­ur, nái að skila inn til­skildum fjölda með­mæl­enda til yfir­kjör­stjórna og fá vott­orð til að full­gilda fram­boð sitt. Nokkrir hafa helst úr lest­inni síð­ustu daga. 

Útlit fyrir að Elísa­bet sé sloppin

Flest bendir til þess að Íslend­ingar geti valið um níu ein­stak­linga í for­seta­kosn­ing­un­um. Yfir­kjör­stjórnir afhenda vott­orð vegna með­mæla í dag, sem fram­bjóð­endur þurfa að skila til inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins áður en dag­ur­inn er úti. 

Andri Snær Magna­son, Ást­þór Magn­ús­son, Davíð Odds­son, Guðni Th. Jóhann­es­son, Guð­rún Mar­grét Páls­dótt­ir, Halla Tóm­as­dótt­ir, Hildur Þórð­ar­dóttir og Sturla Jóns­son voru öll að taka á móti vott­orðum frá yfir­kjör­stjórnum í dag, eða ein­hver á þeirra veg­um. 

Auglýsing

Allt útlit er fyrir að Elísa­bet Kristín Jök­uls­dóttir hafi náð að safna nægum með­mæl­um, en hún hefur staðið í ströngu und­an­farna daga og ferð­ast um allt land til að safna. Í sam­tali við Kjarn­ann seg­ist hún búast við því að þetta hafi náðst. 

Sturla seg­ist vera með flestar und­ir­skriftir

Sturla segir í sam­tali við Kjarn­ann að hann hafi heyrt frá kjör­stjórnum að hann sé með flesta með­mæl­end­ur. Hann skil­aði inn rúm­lega 2.200 bara í Sunn­lend­inga­fjórð­ungi, en lág­marks­fjöldi und­ir­skrifta fyrir allt landið eru 1.500. 

Magnús Ingi Magn­ús­son, eða Texa­s-Maggi, dró fram­boð sitt til baka dag­inn sem skila átti inn und­ir­skrift­um. Hann sagði þá að hann hefði hug á að fara á þing. Bene­dikt Krist­ján Mewes hefur einnig dregið fram­boð sitt til baka, en hann náði aldrei til­skyldum fjölda. Nýjasti fram­bjóð­and­inn, Magnús Ing­berg Jóns­son, náði ekki að skila inn nægum fjölda, en Vísir greinir frá því að um 700 gild með­mæli vanti upp á og ólík­legt verði að telj­ast að hann nái að skila þeim til Ráð­húss­ins í dag. Kjarn­inn náði ekki í Baldur Ágústs­son, en ekki er talið að hann hafi náð til­skildum fjölda með­mæl­enda. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None