Nýja stjórnmálaaflið Viðreisn var formlega stofnað síðdegis í dag, og var Benedikt Jóhannesson stærðfræðingur kjörinn formaður. Fundurinn var afar vel sóttur og troðfullt út úr dyrum, en hátt í 400 manns mættu, segir í tilkynningu.
Grunnstefnumið voru samþykkt og stjórn kjörin. Eftirfarandi voru kjörin í stjórn Viðreisnar sem situr fram að aðalfundi í haust:
Ásamt Benedikt voru eftirtalin kjörin Ásdís Rafnar, lögfræðingur; Bjarni Halldór Janusson, háskólanemi; Daði Már Kristófersson, hagfræðingur; Geir Finnsson, markaðsstjóri; Georg Brynjarsson, hagfræðingur; Hulda Herjólfsdóttir Skogland, alþjóðastjórnmálafræðingur; Jenný Guðrún Jónsdóttir, kennari; Jón Steindór Valdimarsson, lögfræðingur; Jóna Sólveig Elínardóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur; Jórunn Frímannsdóttir, hjúkrunarfræðingur; Katrín Kristjana Hjartardóttir, stjórnmálafræðingur; Sigurjón Arnórsson, viðskiptafræðingur; Vilmundur Jósepsson, fv. formaður Samtaka atvinnulífsins og Þórunn Benediktsdóttur, framkvæmdastjóri hjúkrunar HSS.
Ræðumenn á fundinum voru Geir Finnsson, markaðsstjóri, Hulda Þórisdóttir, lektor í stjórnmálafræði við HÍ, Bjarni Halldór Janusson, háskólanemi, Helga Valfells, forstöðumaður Nýsköpunarsjóðs og Benedikt Jóhannesson, stærðfræðingur.
Fundarstjóri var Saga Guðmundsdóttir, hagfræðingur.
Í tilkynningu segir að samþykkt hafi verið sú grunnstefna að „byggja upp samfélag þar sem einstaklingar vilji og geti nýtt hæfileika sína til fulls.“
Þá segir að mikilvægt sé að tryggja stöðugleika í efnahagsmálum og gæta þess að traust ríki í stjórnmálum og í garð stofnana ríkisins. Efla beri málefnalega umræðu og góða stjórnarhætti með áherslu á gegnsæi og gott siðferði. Önnur áhersluatriði:
- Almannahagsmunir gangi framar sérhagsmunum. Allir einstaklingar, heimili og fyrirtæki skulu njóta jafnræðis.
- Náttúruauðlindir landsins eru sameign þjóðarinnar. Þær ber að nýta skynsamlega og greiða markaðsverð fyrir afnot. Óskert náttúra er verðmæt auðlind.
- Félagslegt réttlæti, sem byggt er á samhug og ábyrgð, tryggir jafnan rétt til menntunar og velferðarþjónustu.
- Vestræn samvinna eykur öryggi og hagsæld þjóðarinnar og er forsenda sterkrar samkeppnishæfni Íslands.
- Jafnrétti stuðlar að aukinni velmegun og tryggir einstaklingum frelsi til að fullnýta hæfileika sína og krafta.
- Neytendur eiga rétt á að búa við umhverfi þar sem hagsmunir þeirra eru í fyrirrúmi.
- Þróttmikið menningarlíf er sérhverri þjóð mikilvægt og það ber að styðja og efla.