Boða áherslu á stöðugleika, traust og jafnræði

Benedikt Jóhannesson stærðfræðingur er formaður Viðreisnar. Um 400 manns mættu á vel heppnaðan stofnfund í Hörpu.

viðreisn
Auglýsing

Nýja stjórn­mála­aflið Við­reisn var form­lega stofnað síð­degis í dag, og var Bene­dikt Jóhann­es­son stærð­fræð­ingur kjör­inn for­mað­ur. Fund­ur­inn var afar vel sóttur og troð­fullt út úr dyr­um, en hátt í 400 manns mættu, segir í til­kynn­ing­u. 

Grunn­stefnumið voru sam­þykkt og stjórn kjör­in. Eft­ir­far­andi voru kjörin í stjórn Við­reisnar sem situr fram að aðal­fundi í haust: 

Ásamt Bene­dikt voru eft­ir­talin kjörin Ásdís Rafn­ar, lög­fræð­ing­ur; Bjarni Hall­dór Jan­us­son, háskóla­nemi; Daði Már Krist­ó­fers­son, hag­fræð­ing­ur; Geir Finns­son, mark­aðs­stjóri; Georg Brynjars­son, hag­fræð­ing­ur; Hulda Herj­ólfs­dóttir Skogland, alþjóða­stjórn­mála­fræð­ing­ur; Jenný Guð­rún Jóns­dótt­ir, kenn­ari; Jón Stein­dór Valdi­mars­son, lög­fræð­ing­ur; Jóna Sól­veig Elín­ar­dótt­ir, alþjóða­stjórn­mála­fræð­ing­ur; Jór­unn Frí­manns­dótt­ir, hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur; Katrín Krist­jana Hjart­ar­dótt­ir, stjórn­mála­fræð­ing­ur; Sig­ur­jón Arn­órs­son, við­skipta­fræð­ing­ur; Vil­mundur Jós­eps­son, fv. for­maður Sam­taka atvinnu­lífs­ins og Þór­unn Bene­dikts­dótt­ur, fram­kvæmda­stjóri hjúkr­unar HSS. 

Auglýsing

Ræðu­menn á fund­inum voru Geir Finns­son, mark­aðs­stjóri, Hulda Þór­is­dótt­ir, lektor í stjórn­mála­fræði við HÍ, Bjarni Hall­dór Jan­us­son, háskóla­nemi, Helga Val­fells, for­stöðu­maður Nýsköp­un­ar­sjóðs og Bene­dikt Jóhann­es­son, stærð­fræð­ing­ur. 

Fund­ar­stjóri var Saga Guð­munds­dótt­ir, hag­fræð­ing­ur.

Í til­kynn­ingu segir að sam­þykkt hafi verið sú grunn­stefna að „byggja upp sam­fé­lag þar sem ein­stak­lingar vilji og geti nýtt hæfi­leika sína til full­s.“ 

Þá segir að mik­il­vægt sé að tryggja stöð­ug­leika í efna­hags­málum og gæta þess að traust ríki í stjórn­málum og í garð stofn­ana rík­is­ins. Efla beri mál­efna­lega umræðu og góða stjórn­ar­hætti með áherslu á gegn­sæi og gott sið­ferði. Önnur áherslu­at­rið­i: 

  • Almanna­hags­munir gangi framar sér­hags­mun­um. Allir ein­stak­ling­ar, heim­ili og fyr­ir­tæki skulu njóta jafn­ræð­is.
  • Nátt­úru­auð­lindir lands­ins eru sam­eign þjóð­ar­inn­ar. Þær ber að nýta skyn­sam­lega og greiða mark­aðs­verð fyrir afnot. Óskert nátt­úra er verð­mæt auð­lind.
  • Félags­legt rétt­læti, sem byggt er á sam­hug og ábyrgð, tryggir jafnan rétt til mennt­unar og vel­ferð­ar­þjón­ustu.
  • Vest­ræn sam­vinna eykur öryggi og hag­sæld þjóð­ar­innar og er for­senda sterkrar sam­keppn­is­hæfni Íslands.
  • Jafn­rétti stuðlar að auk­inni vel­megun og tryggir ein­stak­lingum frelsi til að full­nýta hæfi­leika sína og krafta.
  • Neyt­endur eiga rétt á að búa við umhverfi þar sem hags­munir þeirra eru í fyr­ir­rúmi.
  • Þrótt­mikið menn­ing­ar­líf er sér­hverri þjóð mik­il­vægt og það ber að styðja og efla.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None