Ný kosningaspá sýnir litlar breytingar á fylgi forsetaframbjóðenda undanfarna daga og svo virðist sem að það sé að ná jafnvægi eftir rót síðustu viku. Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur, er enn sá frambjóðandi sem flestum hugnast og hlyti hann 60,4 prósent atkvæða ef gengið yrði til kosninga nú, samkvæmt kosningaspánni sem gerð var í dag. Kosið verður 25. júní.
Fylgi Guðna er nánast það sama og það mældist fyrir fjórum dögum síðan þegar það var 60,3 prósent. Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, nýtur stuðnings 20,1 prósent kjósenda samkvæmt nýjustu kosningaspánni. Hann stendur einnig í stað síðan síðast, þegar stuðningur við hann mældist 20,3 prósent.
Sömu sögu er að segja um Andra Snæ Magnason, rithöfund, og Höllu Tómasdóttur, athafnakonu. Þau mælast með nánast sama stuðning og fyrir fjórum dögum. Í nýjustu kosningaspánni mælist Andri Snær með 11,5 prósent fylgi og Halla með 4,2 prósent.
Aðrir frambjóðendur mundu hljóta minna en eitt prósent atkvæða að Sturlu Jónssyni undanskildum. Hann nýtur stuðnings 1,4 prósent kjósenda samkvæmt kosningaspánni. Aðrir frambjóðendur eru Ástþór Magnússon, Elísabet Jökulsdóttir, Hildur Þórðardóttir og Guðrún Margrét Pálsdóttir.
Kosningaspá Kjarnans og Baldurs Héðinssonar er gerð í fyrsta sinn fyrir forsetakosningar. Kjarninn hefur áður birt niðurstöður kosningaspálíkansins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2014 fyrir fylgi framboða í Reykjavík. Þá verða niðurstöður líkansins um fylgi stjórnmálaflokka í fyrirhuguðum alþingiskosningum birtar á vef Kjarnans í aðdraganda kosninganna í haust. Í nýjustu kosningaspánni fyrir forsetakosningarnar eru nýjustu kannanirnar vegnar:
- Skoðanakönnun Fréttablaðsins 30. maí (vægi 16,2%)
- Skoðanakönnun Maskínu 20. til 27. maí (vægi 15,5%)
- Skoðanakönnun Fréttablaðsins 23. til 24. maí (vægi 14,2%)
- Skoðanakönnun Frélagsvísindastofnunar HÍ fyrir stuðningsmenn Guðna Th. Jóhannessonar 23. til 25. maí (vægi 21,2%)
- Skoðanakönnun Gallup fyrir stuðningsmenn Davíðs Oddssonar 19. til 25. maí (vægi 17,5%)
- Skoðanakönnun MMR 12. til 20. maí (vægi 15,4%)
Hvað er kosningaspáin?
Kosningaspálíkan Baldurs Héðinssonar miðar að því að setja upplýsingarnar sem skoðanakannanir veita í samhengi. Fyrirliggjandi skoðanakannanir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosninga. Kjarninn birti Kosningaspá Baldurs fyrir sveitarstjórnarkosningarnar og reyndist sú tilraun vel. Á vefnum kosningaspá.is má lesa niðurstöður þeirrar spár og hvernig vægi kannana var í takt við frávik kannana miðað við kosningaúrslitin.
Áreiðanleiki könnunaraðila er reiknaður út frá sögulegum skoðanakönnunum og kosningaúrslitum. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könnunin var framkvæmd og svo hversu margir svara í könnununum.