Enn skefur af forskoti Guðna Th. Jóhannessonar, sagnfræðings, í kosningaspá Kjarnans og Baldurs Héðinssonar og mælist hann nú með 56,9 prósent stuðning. Mest hefur hann mælst með 68 prósent atkvæða í kosningaspánni 13. maí. Guðni er þó enn lang vinsælasti frambjóðandinn. Halla Tómasdóttir, athafnakona, bætir mest í nýjustu kosningaspánni og mælist nú með 7,5 prósent fylgi.
Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, og Andri Snær Magnason, rithöfundur, mælast með álíka mikið fylgi og þeir hafa mælst með undanfarna viku. Davíð virðist ekki takast að rjúfa 21 prósent múrinn og fengi 19,8 prósent atkvæða ef gengið yrði til kosninga nú. Andri Snær virðist að sama skapi ekki ná að rjúfa 12 prósent múrinn og mælist nú með 11,2 prósent fylgi.
Halla Tómasdóttir fengi 7,5 prósent atkvæða sem er það mesta sem hún hefur mælst með í kosningaspánni. Lengst af hefur hún mælst með minna en fimm prósent en síðustu vikur hefur fylgi við hana aukist lítillega.
Aðrir frambjóðendur mundu hljóta minna en eitt prósent atkvæða að Sturlu Jónssyni undanskildum. Hann nýtur stuðnings 2,4 prósent kjósenda samkvæmt kosningaspánni. Aðrir frambjóðendur eru Ástþór Magnússon, Elísabet Jökulsdóttir, Hildur Þórðardóttir og Guðrún Margrét Pálsdóttir.
Kosningaspá Kjarnans og Baldurs Héðinssonar er gerð í fyrsta sinn fyrir forsetakosningar. Kjarninn hefur áður birt niðurstöður kosningaspálíkansins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2014 fyrir fylgi framboða í Reykjavík. Þá verða niðurstöður líkansins um fylgi stjórnmálaflokka í fyrirhuguðum alþingiskosningum birtar á vef Kjarnans í aðdraganda kosninganna í haust. Í nýjustu kosningaspánni fyrir forsetakosningarnar eru nýjustu kannanirnar vegnar:
- Skoðanakönnun Gallup 26. maí til 3. júní (vægi 37,2%)
- Skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið 1. til 2. júní (vægi 22,4%)
- Skoðanakönnun MMR 26. maí til 2. júní (vægi 23,9%)
- Skoðanakönnun Fréttablaðsins 30. maí (vægi 16,5%)
Hvað er kosningaspáin?
Kosningaspálíkan Baldurs Héðinssonar miðar að því að setja upplýsingarnar sem skoðanakannanir veita í samhengi. Fyrirliggjandi skoðanakannanir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosninga. Kjarninn birti Kosningaspá Baldurs fyrir sveitarstjórnarkosningarnar og reyndist sú tilraun vel. Á vefnum kosningaspá.is má lesa niðurstöður þeirrar spár og hvernig vægi kannana var í takt við frávik kannana miðað við kosningaúrslitin.
Áreiðanleiki könnunaraðila er reiknaður út frá sögulegum skoðanakönnunum og kosningaúrslitum. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könnunin var framkvæmd og svo hversu margir svara í könnununum.