„Stærsta augnablik Íslandssögunnar síðan á 13. öld“

Hannes Þór og Ronaldo
Auglýsing

Íslenska karla­lands­liðið er til umfjöll­unar í öllum stærstu fjöl­miðlum heims í dag eftir frá­bært jafn­tefli gegn Portú­gal á Evr­ópu­meist­ara­mót­inu í knatt­spyrnu karla í gær­kvöldi. Birkir Bjarna­son skor­aði jöfn­un­ar­mark Íslands en fyr­ir­fram spáðu spark­spek­ingar Íslandi erf­iðum leik gegn stjörnu­prýddu liði Portú­gal.

Skærasta stjarna þeirra Portú­gal­anna, Crist­i­ano Ron­aldo leik­maður Real Madrid á Spáni, var veru­lega von­svik­inn eftir leik­inn gegn Íslandi. Sögur segja að hann hafi neitað að taka í hönd­ina á íslensku leik­mönn­unum eftir leik eins og venja er eftir kapp­leiki af þessu tagi. Þegar fjöl­miðla­fólk náði tali af honum á leið frá leik­vang­inum í Saint Étienne lét hann svo smán­ar­leg orð falla um Ísland. Ísland hafi ekki spilað leik­inn heldur bara varist. „Að mínu viti er smá­menna­bragur á þessu og þeir eru ekki að fara gera neitt í keppn­inn­i,“ sagði Ron­aldo.

Vef­út­gáfa breska götu­blaðs­ins The Mir­ror gerir Ron­aldo einna best skil eftir leik­inn í gær. Þar veltir blaða­mað­ur­inn fyrir sér hvað einn besti knatt­spyrnu­maður sög­unnar var að hugsa eftir því sem leið á leik­inn, útfrá svip­brigðum kappans.

Auglýsing

Víð­lesn­asta dag­blaðið í Portú­gal, Cor­reio da Manhã, birtir stóra mynd af Kára Árna­syni og Crist­i­ano Ron­aldo á for­síðu sinni í dag með fyr­ir­sögn­inni „Ís­kaldur fót­bolti – sælu­víman fryst“. 

Í sam­tali við sama blað við­ur­kennir Ron­aldo að smá tauga­veiklun hafi ein­kennt þennan fyrsta leik liðs­ins á EM 2016. Hann er iðu­lega kall­aður CR7 í portú­gölskum miðl­um. „Þetta er byrjað og nú höfum við engu að tapa. Við erum búnir að ná einum punkti á töfl­una og við verðum að vera jákvæð­ir. Við getum ekki séð eftir þessu,“ er haft eftir CR7 áður en vand­læt­ingu hans á leikstíl Íslands er lýst.

Bresku blöðin eru flest upp­tekn­ari af leik Eng­lands og Wales á morgun en sum blöðin gefa leik Íslands pláss og leika sér, eins og von var á, með ís, frost og snjó. Íþrótta­út­gáfa götu­blaðs­ins i birtir stóra mynd af Birki Bjarna­syni undir fyr­ir­sögn­inni „The ice men comet­h“.

Forsíða sportútgáfu götublaðsins i.

The Guar­dian var með beina texta­lýs­ingu frá leiknum á vef sín­um. Í lok leiks er haft eftir Pat­rick Sulli­van, les­anda Guar­di­an, að þetta jafn­tefli sé stærsta augna­blik Íslands­sög­unnar síðan á 13. öld, eða þegar Íslend­ingar hófu að rita Íslend­inga­sög­urnar í fyrsta sinn. „Þangað til voru það sögu­ljóð, þjóð­sögur og sagnir sem voru lagðar á minn­ið. Ég velti fyrir mér hvað verður skrifað um þetta!“

Í Aust­ur­ríki fjallar Kronen Zeit­ung, eitt víð­lesn­asta blað þar í landi, einnig um Ron­aldo og ummæli hans eftir leik­inn. Leikur Aust­ur­ríkis og Ung­verja­lands er þó í fyrr­i­rúmi en þau lönd leika einnig í F-riðli móts­ins eins og Ísland og Portú­gal.

Birkir Bjarnason á vef USA Today.

Venju­legur fót­bolti er alltaf að verða vin­sælli og vin­sælli í Banda­ríkj­un­um, þó hinn amer­íski sé alltaf jafn vin­sæll. USA Today fjallar um jafn­tefli Íslands undir fyr­ir­sögn­inni: „Iceland earns stunn­ing draw aga­inst Portugal at Euro 2016“. Það er ekki oft sem fréttir af fót­bolta fjalli um slá­andi jafn­tefli enda eru slík úrslit yfir­leitt akkúrat ekki slá­andi.

Forsíða Politiken í gær þar sem Íslendingum var sagt að róa sig.

Í Dan­mörku hefur Politi­ken breytt haus vefs­ins og málað merki sitt í íslensku fána­lit­unum og til hliðar ritað „Áfram Ísland! Til­lykke med det første point, Island!“. Takk fyrir það, Dan­ir. Von­andi fáið þið líka að vera með næst. Í gær hafði for­síða prent­uðu útgáfu Politi­ken prýtt íslenska fán­ann og skila­boðum beint til Íslend­inga: „Skrúfið aðeins niður í vænt­ing­un­um.“

Hausinn á vef Politiken.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None