Ísland gerði annað jafntefli – í þetta sinn var það svekkjandi

Ísland lék gegn Ungverjum í Marseilles. Leikurinn fór 1-1 eftir mark úr vítaspyrnu frá Gylfa Þór og sjálfsmark frá Birki Má.

Íslensku stuðningsmennirnir stóðu þétt við bakið á strákunum okkar allan leikinn þrátt fyrir vonbrigðin í lokin.
Íslensku stuðningsmennirnir stóðu þétt við bakið á strákunum okkar allan leikinn þrátt fyrir vonbrigðin í lokin.
Auglýsing

Leik Íslands og Ung­verja lauk með 1-1 jafn­tefli í Marseil­les í dag. Gylfi Þór Sig­urðs­son skor­aði mark úr víta­spyrnu í fyrri hálf­leik en Ung­verjum tókst að jafna þegar lítið var eftir af leikn­um. Alfreð Finn­boga­son náði svo að krækja í auka­spyrnu, rétt fyrir utan víta­teig, þegar fáeinar sek­úntur voru eftir af leikn­um. Íslend­ingum tókst hins vegar ekki að skora.

„Mjög svekkj­and­i,“ sagði Gylfi Þór í við­tali eftir leik­inn. „Þetta var mik­ill skellur fyrir okk­ur. Við vorum með þrjú stig í hend­i.“

Ung­verjarnir hljóta að vera ánægðir með þessi úrslit eftir leik­inn því Ísland hélt vel á spöð­unum allan leik­inn og hélt sínu marki hreinu þar til fyr­ir­gjöf end­aði í tá Birkis Más Sæv­ars­sonar og end­aði í mark­inu. Birkir Már gat lítið í mál­inu gert enda gerði Ung­verji harða sókn að bolt­anum fyrir aftan hann.

Auglýsing

Eftir þennan leik er Ísland með tvö stig í F-riðli og í öðru sæti á eftir Ung­verjum sem eru með fjögur stig. Aust­ur­ríki og Portú­gal leika á eftir klukkan 19. Ísland á einn leik eftir í riðla­keppn­inni gegn Aust­ur­ríki á mið­viku­dag­inn. Sá leikur verður leik­inn í Par­ís.

Ísland getur enn tryggt sér þát­töku í 16 liða úrslitum Evr­ópu­meist­ar­móts­ins. Úrslit leiks Portú­gal og Aust­ur­ríki skipta auð­vitað máli. Portú­gal er með eitt stig í riðl­inum eftir jafn­tefli gegn Íslandi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None