Tveir þriðju íbúa við Mývatn leggjast gegn hótelbyggingu

Mývatns
Auglýsing

Lið­lega tvö hund­ruð íbúar í Mývatns­sveit lýsa and­stöðu við að byggt verði hótel á bakka Mývatns við Hótel Reykja­hlíð. Fram­kvæmdin er sögð ganga gegn anda laga um verndun Mývatns og Lax­ár. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu.

Bygg­ingin er ­sam­kvæmt teikn­ingu öll langt innan 200 metra vernd­ar­línu lag­anna. Íbú­arn­ir telja að hún muni spilla útsýni til vatns­ins og ímynd sveit­ar­inn­ar. Sam­þykkt á­for­manna skapi hættu­legt for­dæmi varð­andi fram­kvæmdir á vernd­ar­svæð­inu.

Und­ir­skriftum var safnað meðal íbúa með lög­heim­ili í Skútu­staða­hreppi sem eru 18 ára og eldri. Sam­tals skrif­uðu 202 eða 66 pró­sent íbú­anna und­ir. Fimm­tíu og átta, eða 19 pró­sent höfn­uðu þátt­töku. Ekki náð­ist til 45 íbúa og nokkrir tóku ekki þátt vegna trún­að­ar­starfa sem þeir hafa með hönd­um. Sam­tals eru það um 15 pró­sent íbúa, segir í til­kynn­ing­unni.

Auglýsing

Söfnun und­ir­skrifta hófst laug­ar­dag­inn 25. júní en lauk 12. júlí þegar Yngvi Ragnar Krist­jáns­son, odd­viti hrepps­nefndar tók við und­ir­skrifta­list­unum úr hendi Ásdísar Ill­uga­dótt­ur. 

Yngvi Ragnar þakk­aði söfn­ur­um und­ir­skrift­anna fyrir að sýna mál­efnum sveit­ar­fé­lags­ins áhuga. Auð­vitað verð­i hlustað á það sem veru­legur meiri­hluti íbú­anna seg­i. „Við und­ir­rit­uð, íbúar í Skútu­staða­hreppi, leggj­um­st ­gegn áform­aðri bygg­ingu við Hótel Reykja­hlíð. Bygg­ingin gengur gegn anda laga um verndun Mývatns og Laxár þar sem 200 metra bakki er frið­að­ur. Hún spill­ir út­sýni til vatns­ins og er brot á þeirri reglu að hefja atvinnu­rekstur ekki vatns­megin veg­ar.  Þótt talað sé um við­bygg­ingu er öllum ljóst að hér er annað og meira á ferð­inni.  Sam­þykki fyr­ir­liggj­andi deilu­skipu­lags­til­lög­u ­myndi setja hættu­legt for­dæmi. Við skorum því á sveit­ar­stjórn og skipu­lags­nefnd að stöðva þegar í stað umfjöllun um hana,“ sagði í text­anum sem fólk und­ir­rit­aði.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None