Sjónvarpsrisinn LG notar hugmyndir Andra Snæs í nýja auglýsingaherferð

Andri Snær Magnason gaf út bókina Draumalandið árið 2006 þar sem hann fjallar um hugmyndir sínar um að slökkva götuljós á næturnar svo fólk geti séð stjörnurnar og norðurljósin.
Andri Snær Magnason gaf út bókina Draumalandið árið 2006 þar sem hann fjallar um hugmyndir sínar um að slökkva götuljós á næturnar svo fólk geti séð stjörnurnar og norðurljósin.
Auglýsing

Hug­mynd Andra Snæs Magna­sonar um að slökkva ætti ljósin í Reykja­vík svo að fólk gæti séð stjörn­u­rnar og norð­ur­ljósin er aðal­at­riði í nýrri aug­lýs­inga­her­ferð kóreska raf­tækj­arís­ans LG. Hug­mynd­ina setti Andri Snær fram í bók sinni Drauma­land­inu sem kom fyrst út árið 2006 á íslensku og árið 2008 á ensku.

Í nýrri aug­lýs­inga­her­ferð LG þar sem ný gerð sjón­varpa frá fyr­ir­tæk­inu er kynnt er Reykja­vík og him­in­inn yfir Íslandi í aðal­hlut­verki. Í kynn­ing­ar­mynd­bandi fyrir nýju her­ferð­ina sést að aug­lýs­ingin var tekin upp hér á landi að vetri til, enda er erfitt að greina norð­ur­ljós á björtum sum­ar­kvöld­um.

Í til­efni af her­ferð­inni hefur LG leigt tón­list­ar­húsið Hörpu annað kvöld og stendur fyrir tón­leikum og ljósa­sýn­ingu. Fram koma íslensku tón­list­ar­menn­irnir Ólafur Arn­alds og Ásgeir Trausti og elektróníska ofur­bandið GusGus.

Auglýsing

Á vef Hörpu má lesa um dag­skrá tón­leik­anna. Þar segir að tón­leika­sal­ur­inn Silf­ur­berg sé þegar óþekkj­an­legur vegna þess að búið er að skreyta hann „bak og fyrir með sjón­varps­skjáum frá LG“ með það að mark­miði að lýkja eftir norð­ur­ljósastemn­ingu.

Andri Snær vakti athygli á þessum við­burði á Face­book-­síðu sinni í dag. Í Drauma­land­inu setti hann fram margar hug­myndir sínar um hvernig Íslend­ingar gætu gengið betur um nátt­úru lands­ins og notið hennar bet­ur. Þremur árum eftir að bókin kom fyrst út var gerð heim­ild­ar­mynd eftir for­skrift bók­ar­innar og kom hún út árið 2009. „[S]vona getur ein blað­síða í bók orðið að stór­tón­leikum á vegum LG í Kóreu 10 árum síð­ar,“ skrifar Andri Snær á Face­book.

Nokkrum sinnum hefur verið slökkt á götu­ljósum í bæjum og borgum Íslands síðan bók Andra Snæs kom út fyrir tíu árum. Það var fyrst gert 28. sept­em­ber 2006 þegar götu­ljós voru slökkt í 30 mín­útur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, í Reykja­nesbæ og á Akra­nesi í til­efni af opnun Alþjóð­legu kvik­mynda­há­tíð­ar­innar í Reykja­vík.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None