Alþjóðasamtök flugumferðarstjóra segja ISAVIA verða að bregðast við

Alþjóðasamtök flugumferðarstjóra segja að ISAVIA verði að bregðast við undirmönnun í stétt flugumferðarstjóra. Flugöryggi sé ógnað og reglum ekki fylgt.

Flugumferðarstjórar hafa staðið í miklum deilum við ISAVIA undanfarið.
Flugumferðarstjórar hafa staðið í miklum deilum við ISAVIA undanfarið.
Auglýsing

Alþjóða­sam­tök flug­um­ferð­ar­stjóra, IFATCA, lýsa yfir miklum áhyggjum af flug­ör­yggi á Íslandi. Í til­kynn­ingu sem sam­tökin sendu frá sér í gær, um ástandið á Íslandi, kemur fram að mönnun flug­um­ferð­ar­stjóra í Leifs­stöð sé ekki næg, reglum sé ekki fylgt og ISA­VIA þurfi að bregð­ast hratt og skjótt við til að ganga ekki gegn alþjóða­lög­um. Undir til­kynn­ing­una skrifar Tom Laur­sen, fram­kvæmda­stjóri IFATCA í Evr­ópu. Flug­um­ferð­ar­stjórar hér­lendis hafa staðið í miklum kjara­deilum und­an­farin miss­eri, sem fól meðal ann­ars í sér yfir­vinnu­bann, sem gerði það að verkum að miklar rask­anir urðu á flug­um­ferð. 

IFATCA segja að nýj­ustu skýrslur frá Íslandi um flug­ör­yggi sýni að vegna mann­eklu séu flug­um­ferð­ar­stjórar skildir eftir einir í Leifs­stöð í yfir átta klukku­stundir í senn og það sýni fram á að ISA­VIA hafi mis­tek­ist að tryggja við­un­andi þjón­ustu- og örygg­is­við­mið. Það sé grafal­var­leg­t. 

ISA­VIA verði að bregð­ast við

Sam­tökin hvetja ISA­VIA til að gera sér grein fyrir und­ir­mönnun í stétt­inni og bregð­ast skjótt við því. Þá ætti ISA­VIA að þróa með sér lang­tíma­á­ætlun sem tryggi að mönnun flug­um­ferð­ar­stjóra sé næg í ljósi sívax­andi flug­um­ferðar í gegn um Leifs­stöð. Einnig eigi að sjá til þess að þjálfun stétt­ar­innar sé við­un­andi og aukin traffík megi ekki verða á kostnað henn­ar. Þar vísa sam­tökin í alþjóða­lög um flug­um­ferð. 

Auglýsing

Í maí sendu sam­tökin jafn­framt frá sér yfir­lýs­ingu þar sem lýst var yfir áhyggjum með yfir­vinnu­bann flug­um­ferð­ar­stjóra. 

Ógna öryggi áhafna og far­þega

Í til­kynn­ing­unni í gær segir að til að fyllsta öryggis sé gætt og öllum reglum sé full­nægt hvað varðar flug­um­ferð í heim­inum þurfi aðilar allra landa heims að fylgja settum regl­um, meðal ann­ars hvað varðar mönnun flug­um­ferð­ar­stjóra. 

Lýst er yfir áhyggjum að nýj­ustu vend­ingar innan ISA­VIA og þeirra vand­kvæði með mönnun geti ógnað öryggi áhafna og far­þega í milli­landa­flugi til og frá Ísland­i. 

Alþjóða­sam­tök flug­um­ferð­ar­stjóra eru með meira en 50 þús­und félaga í 133 löndum um allan heim. Sam­tökin huga að öryggi og áreið­an­leika í flug­um­ferð og eru einnig hags­muna­sam­tök fyrir flug­um­ferð­ar­stjóra.

Samið en hafnað

Sam­tök atvinn­u­lífs­ins (SA) fyrir hönd ISA­VIA og Félag íslenskra flug­­um­­ferð­­ar­­stjóra (FÍF) und­ir­­rit­uðu kjara­­samn­ing í hús­næði rík­­is­sátta­­semj­­ara á um miðja nótt þann 25. júní síð­ast­lið­inn. Flug­um­ferð­ar­stjórar höfn­uðu samn­ingn­um, sem átti að gilda út árið 2018, í atkvæða­greiðslu. Alþingi setti lög á yfir­vinnu­bann flug­um­ferð­ar­stjóra í júní og því var gerð­ar­dómur kall­aður saman til að ákveða kaup og kjör, náist ekki að semja. 

Hér má lesa til­kynn­ingu IFATCA

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None