Fórnarlömbin á aldrinum 12 til 27 ára

Tveir eru látnir og hátt í 20 særðir eftir skotárás á næturklúbbi í Flórída í nótt. Þrír eru í haldi lögreglu. Staðurinn var að halda viðburð fyrir unglinga.

Skotárásin var gerð á skemmtistað sem var að halda viðburð fyrir unglinga á ZombieCon tónlistarhátíðinni.
Skotárásin var gerð á skemmtistað sem var að halda viðburð fyrir unglinga á ZombieCon tónlistarhátíðinni.
Auglýsing

Að minnsta kosti tveir eru látnir og hátt í tutt­ugu særðir eftir skotárás á næt­ur­klúbbi í Fort Myers í Flór­ída í Banda­ríkj­unum í nótt. Verið var að halda við­burð fyrir ung­linga og voru flestir gest­anna á aldr­inum 12 til 17 ára. Banda­rískir fjöl­miðlar greina frá því að þrír séu í haldi lög­reglu í tengslum við mál­ið. Ein­hverjir eru í líf­hætt­u. 

Árásin var gerð um klukkan eitt um nótt að stað­ar­tíma, eða um fimm í morgun að íslenskum tíma. AP frétta­stofan greinir frá því að um klukkan 10 í morgun að íslenskum tíma hafi svæðið við klúbb­inn verið úrskurðað öruggt, en gatan verði lokuð á meðan rann­sókn stendur yfir.

Auglýsing

Þetta er í annað sinn á rúmum mán­uði sem fjöldamorð er framið á næt­ur­klúbbi í Flór­ída, en í júní voru 50 manns myrtir í skotárás á skemmti­stað fyrir hinsegin fólk í Orlando. Það var mann­skæð­asta skotárás í sögu Banda­ríkj­anna. Árásin var rann­sökuð sem hryðju­verk og árás­armað­ur­inn, Omar Sadd­iqui Mateen, 29 ára gam­all Flór­ídabúi, var skot­inn til bana í áhlaupi lög­reglu.

Hér er hægt að fylgj­ast með Twitt­er­færslum um mál­ið.

Upp­fært klukkan 15:20

AP frétta­stofan greinir frá því að fjórir séu á sjúkra­húsi eftir árás­ina, en tveir voru skotnir til bana. Talið er að 17 manns hafi særst í árásinni. Fórn­ar­lömbin eru á aldr­inum 12 til 27 ára. Haft er eftir for­svars­mönnum Club Blu, þar sem árásin var fram­in, að skot­hríðin hafi byrjað á svip­uðum tíma og for­eldrar komu að sækja börn sín. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None