Ferðamenn streyma í óskráða og ólöglega þjónustu

Clive Stacey, sem rekur stærstu, einstöku ferðaskrifstofuna sem skipuleggur Íslandsferðir, hefur miklar áhyggjur af stöðu mála hérlendis. Hann segir aðeins tækifærissinna þéna á viðbótartraffík til Íslands.

skogafoss_14357073049_o.jpg
Auglýsing

„Eins og ég les í stöð­una þá er stórum hluta af þess­ari við­bót­artraffík til Íslands eig­in­lega troðið inn á þessar óskráðu þjón­ustur sem engar reglur gilda um. Þetta gagn­ast ekki neinum nema tæki­fær­issinn­unum sem venju­lega þéna mest, en með litlum ábata, vegna þess að gest­irnir eru féflettir og á sama tíma fær íslensk ferða­þjón­usta á sig slæmt orð,“ segir Clive Stacey, fram­kvæmda­stjóri ferða­skrif­stof­unnar Discover the World, í við­tali við vef­síð­una Túrist­i.is.  

Hann segir að vegna þess að svo mörg flug­fé­lög fljúgi til Íslands hafi þau orðið að lækka far­gjöld til að fylla vél­arn­ar, og það útskýri verð­lækkun á flugi milli Íslands og Bret­lands milli ára. „Á sama tíma eru hót­elin full­bókuð mestan hluta árs­ins og því verður fólk að not­ast við Air­bnb sem gerir búsetu í mið­borg Reykja­víkur dýr­ari fyrir íbú­ana. Og bíla­leigu­fyr­ir­tækin hagn­ast varla því það eru svo margir aðilar sem starfa ólög­lega á þeim mark­aði og sam­bæri­leg staða virð­ist vera á mörgum öðrum sviðum í íslenskri ferða­þjón­ust­u.“ Því sé svo miklu „troð­ið“ inn í óskráða þjón­ust­u. 

„Ég átta mig á að þetta eru stór orð en ég tel mjög mik­il­vægt að það verði komið á skipu­lagi til að takast á við þetta mikla inn­streymi án þess þó að eyði­leggja helstu ástæður þess að fólk elskar að koma til Íslands.“

Auglýsing

Stacey seg­ist hafa skipu­lagt ferðir til Íslands allt frá árinu 1972, og stofn­aði sína eigin ferða­skrif­stofu árið 1984 sem er nú stærsti ein­staki skipu­leggj­andi ferða til Íslands í öllum heim­in­um. „Þó ég sé mjög ánægður með að Ísland njóti nú verð­skuld­aðrar athygli sem mik­il­feng­legur áfanga­staður þá hef ég miklar áhyggjur af stefnu­leysi í hvernig á að gera gestum kleift að upp­lifa til hins ýtrasta alls þess ein­staka sem landið hefur upp á að bjóða.“ 

Ef ferða­fólk eigi að njóta fyrstu og síð­ustu kynna sinna af land­inu þá verði að bjóða upp á flug­höfn sem geti tekið á móti öllum fjöld­an­um. „Ef þú vilt að fólk meti helsti ferða­manna­staði lands­ins þá verður að hafa stjórn á þeim fjölda sem þangað kem­ur. Og ef þú lofar fólki víð­áttu þá máttu ekki bara leyfa þús­undum manna að streyma inn á við­kvæm svæði sem þola ekki svona mik­inn ágang. Með öðrum orðum þá verður að setja reglur til að vernda þessi verð­mæti og hið verð­mæta vöru­merki Iceland,“ segir Stacey við Túrista. 

Hann segir að lítið hafi verið gert þrátt fyrir að mikið hafi verið rætt um hvernig eigi að taka á ferða­manna­straumn­um. „Rík­is­stjórn Íslands verður að ráð­ast í aðgerðir og vinna með öllu hags­muna­að­ilum í að búa til almenni­legt skipu­lag sem gerir ferða­fólki mögu­legt að njóta íslenskrar nátt­úru og þétt­býlis án þess þó að skerða lífs­gæði íbú­anna sjálfra."

Mann­mergðin við vin­sæl­ustu ferða­manna­stað­ina er ennþá meira vanda­mál í dag en fyrir ári síð­an. „Hvort að þeir sem halda um stjórn­taumana, hverjir sem það nú eru, hafi gert eitt­hvað í mál­unum er erfitt að segja en við fáum fleiri kvart­anir varð­andi þetta atriði núna en áður. Það á líka við um Flug­stöð Leifs Eiríks­sonar en þar eru greini­lega alltof margir far­þegar sam­an­komnir á nokkrum dag­spört­um, en hvort það sé óhóf­legt, miðað við alla flug­um­ferð­ina, er erfitt að segja.”

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None