Sótt að formannsembætti og oddvitasæti Sigmundar Davíðs

sigmundur davíð
Auglýsing

Engin sátt er um Sig­mund Dav­íð G­unn­laugs­son sem for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins eða sem odd­vita ­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, en það sést kannski best á því að allt bendir til þess að hann fái mót­fram­boð á báðum víg­stöðv­um.

Þrír þing­menn bjóða sig fram í fyrsta sæti á lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi auk Sig­mundar Dav­íðs. Það eru þau Hösk­uldur Þór­halls­son, Líneik Anna Sæv­ars­dóttir og Þór­unn Egils­dótt­ir.

Stundin greindi frá því í dag að bæði Þór­unn og Líneik hefðu skilað inn fram­boði í fyrsta ­sæt­ið. Þór­unn sæk­ist eftir fyrsta til öðru sæti og Líneik ­fyrsta til þriðja sæti. Hösk­uldur hafði áður greint frá því að hann sækt­ist eftir fyrsta sæt­inu, líkt og hann gerði fyr­ir­ ­síð­ustu kosn­ing­ar, en þá laut hann í lægra haldi fyr­ir­ ­for­mann­inum Sig­mundi Dav­íð.

Auglýsing

Líneik sagði við Stund­ina að hún­ ­styddi Sig­mund Davíð sem for­mann flokks­ins en sagð­ist telja ­mik­il­vægt að það væri fleiri val­kostir í fyrsta sæt­inu. Því er lík­legra að fram­boð henn­ar, og Þór­unn­ar, bein­ist gegn Hösk­uldi, sem hefur verið mjög gagn­rýn­inn á Sig­mund Dav­íð. 

Þá sagði Sig­urður Ingi Jóhanns­son, vara­for­maður flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra, í dag að hann úti­lok­aði ekki að hann myndi bjóða sig fram til for­manns ­flokks­ins. Áður hefur hann sagt að hann myndi ekki fara fram gegn ­sitj­andi for­manni. Sig­urður Ingi var í við­tali við Snærósu S­indra­dótt­ur, blaða­mann á Frétta­blað­inu, á Fundi fólks­ins. Hann sagði að flokks­þing flokks­ins myndi vænt­an­lega ekki fara fram fyrr en um mán­aða­mótin sept­em­ber-októ­ber. Þangað til væri langur tími í póli­tískum skiln­ingi og hann hefði ekki tek­ið ­neina ákvörð­un. Hann myndi taka allt að sér sem flokk­ur­inn fæli honum að gera. Hann var þá spurður hvort hann væri að ýja að því að það þyrfti að fá Sig­mund Davíð til að hætta við ­for­manns­fram­boð sagði hann að það þyrfti að láta flokks­mönn­um eftir að ræða það.

Áður hefur Eygló Harð­ar­dótt­ir, ­fé­lags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra og rit­ari Fram­sókn­ar­flokks­ins, ekki úti­lokað að hún gefi kost á sér í for­manns­emb­ætt­ið.  

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None