Sigmundur segist aldrei hafa átt Wintris

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segist hafa orðið fyrir tilefnislausri árás þegar Panamaskjölin voru gerð opinber. Hann hafi aldrei átt Wintris, og Tortóla sé ekki skattaskjól.

sigmundur davíð
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, segir að hann hafi aldrei átt aflands­fé­lag. Það hafi aðeins verið konan hans sem átti félag á Tortóla, sem hann segir reyndar að sé ekki skatta­skjól, því konan hans hafi ekki geymt pen­inga í skatta­skjóli. 

Þetta kom fram í upp­hafi kosn­inga­þáttar sem nú er í beinni útsend­ingu á RÚV. 

Sig­mundur Davíð kann­að­ist ekki heldur við það að verið væri að kjósa snemma vegna hans og Wintris-­máls­ins. Hann sagð­ist hafa orðið fyrir ótrú­legri árás, sem hafi komið á dag­inn að hafi verið „til­efn­is­laus og ótrú­lega gróf­“. 

Auglýsing

Frétta­menn spurðu hann ítrekað hvort honum þætti ekk­ert sið­ferð­is­lega ámæl­is­vert við að eiga félag í skatta­skjóli og hvort honum þætti ekki til­efni til að biðj­ast afsök­unar á mál­inu. Hann sagð­ist geta beðist afsök­unar fyrir margt bæði sem ein­stak­lingur og stjórn­mála­mað­ur, en „ég get ekki beðist afsök­unar á því hvernig ákveðnir aðil­ar, meðal ann­ars á vegum ykkar stofn­un­ar, gengu fram í mál­in­u.“ 

Átti Wintris þegar það lýsti kröfum í bú bank­anna

Greint var frá því í Kast­ljós­þætti í byrjun apríl að Sig­mundur Davíð var skráður eig­and­i ­fé­lags­ins Wintris Inc. þegar það lýsti kröfum í slitabú föllnu bank­anna ­þriggja. Þar kom einnig fram að hann hefði selt helm­ings­hlut sinn í félag­inu til eig­in­­konu sinnar á einn banda­­ríkja­­dal 31. des­em­ber 2009. Engar upp­­lýs­ingar þurfti að gefa upp um félagið þar sem kaupin fóru fram fyrir ára­­mót­in, því ný lög tóku gildi 2010.

Félagið Wintris er skráð á Tortóla, sem er þekkt skatta­skjól og meðal ann­ars skil­greint sem slíkt af íslenskum yfir­völd­um. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None