Árvakur tapar 164 milljónum og fer í útvarpsrekstur

Morgunblaðið
Auglýsing

Árvakur hf., útgef­andi Morg­un­blaðs­ins og mbl.is, hefur keypt allan útvarps­rekstur Sím­ans, það er útvarps­stöðv­arnar K100 og Retro. Þá hefur fyr­ir­tækið keypt allt hlutafé í Eddu - útgáfu, sem gefur meðal ann­ars út Andr­és­blöð og Syrpu. 

Þetta var kynnt á starfs­manna­fundi hjá Árvakri í dag, og greint er frá þessu á mbl.­is.

Þá var einnig greint frá tapi Árvak­urs í fyrra, en það var tæp­lega 164 millj­ónir króna. „Eins og töl­­urn­ar bera með sér var rekst­­ur­inn mjög þung­ur í fyrra. Árið byrj­aði ágæt­­lega, en þegar leið fram á vorið hóf­ust kjara­­deil­ur sem höfðu mik­il áhrif á and­­rúms­­loftið á aug­lýs­inga­­mark­aði. Aug­lý­­send­ur kipptu að sér hönd­um eins og yf­ir­­leitt ger­ist við slíkt óvissu­á­stand og tekj­­urn­ar duttu nið­ur. Við þetta bætt­ist svo að samið var um mikl­ar hækk­­an­ir í kjara­­samn­ing­um og voru þær tölu­vert um­fram áætl­an­ir okk­­ar. Gróf­­­lega má segja að hvor þess­­ara þátta skýri um helm­ing taps­ins,“ er haft eftir Har­aldi Johann­essen, fram­kvæmda­stjóra Árvak­urs og rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins, á mbl.­is. 

Auglýsing

Hann segir að líkur séu á halla­rekstri í ár þó rekst­ur­inn sé mun betri það sem af er ári en síð­asta ár. Rekstr­ar­tekjur fyr­ir­tæk­is­ins námu tæpum 3,2 millj­örðum á árinu 2015 og aðrar tekjur 128 millj­ón­ir. Rekstr­ar­kostn­aður nam tæpum 3,3 millj­örðum og afskriftir námu tæp­lega 100 millj­ónum króna. Að með­al­tali voru 184 starfs­menn og 500 blað­ber­ar. 

Árvakur hefur einnig ákveðið að opna tvær nýjar vef­síður sem verða reknar undir hatti mbl.­is. Sjáv­ar­út­vegsvef­ur­inn 200 mílur hefur þegar tekið til starfa og í síð­ari hluta mán­að­ar­ins mun fara í loftið mat­ar­vef­ur. 

Tapið tæp­lega 1,5 millj­arðar frá 2009

Árvakur hefur tapað umtals­verðum fjár­­hæðum á und­an­­förnum árum. Rekstr­­­ar­tap félags­­­ins var 667 millj­­­ónir króna árið 2009. Árið eftir tap­aði það 330 millj­­­ónum króna alls og árið 2011 nam tapið 205 millj­­­ónum króna. Tapið 2012 var 47 millj­­­ónir króna. Árið 2013 skil­aði Árvakur sex millj­­­óna króna hagn­aði en 2014 var rekst­­­ur­inn aftur kom­inn öfugu megin við núllið. Þá tap­aði félagið 42 millj­­­ónum króna. 

Tap Árvak­­urs frá 2009, þegar upp­i­­­staðan í núver­andi eig­enda­hópi eign­að­ist félag­ið, og til loka síð­­asta árs nemur tæp­­lega 1,5 millj­­örðum króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None