Segir hóp Framsóknarmanna hafa hvatt til útstrikana á sér

sigmundur
Auglýsing



Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, segir að honum sárni hversu hart hafi verið gengið fram við að koma honum frá. Hópur fólks innan flokks­ins hafi ákveðið að verja kosn­inga­bar­átt­unni til að hvetja til útstrik­ana á honum fremur en að afla flokknum fylg­is. „Sér­stak­lega þótti mér miður að fólk úr öðrum kjör­dæmum skyldi blanda sér í kosn­inga­bar­áttu okkar í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Það hlýtur að vera eins­dæmi. Sú til­raun til að fella mig úr fyrsta sæti tókst þó ekki og raunar má segja að hvað þetta varðar hafi kosn­ing­arnar komið enn betur út en kjör­dæm­is­þing­ið.“ Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem hann sendi flokks­fé­lögum sínum í Norð­aust­ur­kjör­dæmi og greint er frá á Vísi.

Þar segir Sig­mundur Davíð einnig að hann ætli að bíða með að svara ýmsum spurn­ingum um „gang mála að und­an­förnu og stöð­una nú“ á meðan að enn sé óvissa um stjórn lands­ins. Þegar þau mál hafi verið til lykta leitt gef­ist tæki­færi til að ræða og leysa önnur mál.

Auglýsing

18 pró­sent strik­uðu Sig­mund Davíð út

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fékk verstu útkomu í 100 ára sögu sinni í kosn­ing­unum um síð­ustu helgi þegar hann fékk 11,5 pró­sent fylgi. Í kosn­ing­unum 2013 hafði hann fengið 24,4 pró­sent. Sig­mundur Davíð brást við með því að segja við Frétta­blaðið að átök­in á flokks­þingi, þar sem hann var felldur sem for­mað­ur, hafi verið helsta ástæða þess að flokk­ur­inn tap­aði svona miklu fylgi. „Ég var búinn að leggja drög að því hvernig með öfl­­ugri kosn­­inga­bar­áttu hefðum við getað hækkað fylgið um kannski fjög­ur ­pró­­sent­u­­stig og svo kannski tvö í við­­bót í kosn­­ing­unum sjálf­­um. Við hefðum þá getað gert ráð fyrir 18 til 19 pró­­senta fylg­i,“ sagði Sig­mundur Davíð við Frétta­blaðið á mánu­dag. Í sama blaði í gær er því haldið fram að hann sé að ein­angra sig frá öðrum þing­mönnum flokks­ins og að honum hugn­ist ekki að vinna með Sig­urði Inga og þing­flokknum í sátt.

Nið­ur­stöður kosn­ing­anna voru reyndar ekk­ert sér­stak­lega góðar fyrir Sig­mund Dav­íð, og virð­ast ekki styðja þessa kenn­ingu hans. Flokk­ur­inn fékk 20 pró­sent atkvæða í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, sem er minnsta fylgi sem hann hefur nokkru sinni fengið í kjör­dæm­inu frá því að hann hóf að bjóða fram. Þess utan var Sig­mundur Davíð sá fram­bjóð­andi kjör­dæm­is­ins sem var oft­ast strik­aður út af kjós­end­um, en alls strik­uðu 18 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins yfir nafn hans.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None