Segir að Katrín eigi að fá umboðið ef Bjarni skilar því í dag

BrynjarN.elsson.47.jpg Brynjar Nielsson
Auglýsing

Brynjar Níels­son, þing­maður Sjáf­stæð­is­flokks, telur rétt að Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður Vinstri grænna, fái stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boðið næst ef Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, skili því í dag. Hún reyni þá „að mynda þessa fimm flokka vinstri stjórn.“ Þetta sagði Brynjar í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 í dag þar sem hann ræddi stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður ásamt Stein­grími J. Sig­fús­syni, þing­manni Vinstri grænna. 

Stein­grímur sagði að þótt nefna mætti ein­hver mála­svið þar sem ekki væri óbrú­an­leg gjá á milli Vinstri grænna og Sjálf­stæð­is­flokks þá væri lengst allra á milli flokk­anna í öðrum grund­vall­ar­mál­um. Þar nefndi hann jöfn­uð, skatt­lagn­ingu og ráð­stöfun rík­is­fjár­mála. Það gæti því reynst erfitt fyrir flokk­anna tvo að ná saman líkt og margir Sjálf­stæð­is­menn hafa talað fyrir og eðli­leg­ast væri fyrir Vinstri græna að líta fyrst til flokk­anna sem séu þeim nær í stefn­u. 



Auglýsing

Brynjar sagði að Við­reisn og Björt fram­tíð hefðu stillt Sjálf­stæð­is­flokknum upp við vegg í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum með því að fara fram á  ein­hverjar breyt­ingar í sjáv­ar­út­vegi og land­bún­aði og að það þyrfti atkvæða­greiðslu um Evr­ópu­sam­band­ið. „Það er vont þegar verið er að stilla upp við vegg með þessum hætti, segja að ein­hverjir hlutir séu ófrá­víkj­an­leg­ir. Þá kom­ast menn lítið af stað. Þannig að ég held að það sé ákveðið vanda­mál í þessu sem gerir þetta miklu erf­ið­ar­a.“

Kjarn­inn greindi frá þvi í morgun að Evr­­ópu­­málin séu helsti ásteyt­ing­­ar­­steinn­inn í við­ræðum Sjálf­­stæð­is­­flokks ann­­ars vegar og Við­reisnar og Bjartrar fram­­tíðar hins vegar um myndun nýrrar rík­­is­­stjórn­­­ar. Sam­­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans hefur mynd­­ast umræð­u­grund­­völlur fyrir breyt­ingar í sjá­v­­­ar­út­­­vegs- og land­­bún­­að­­ar­­málum sem allir aðilar geta sætt sig við að byggja for­m­­legar umræður á en í Evr­­ópu­­málum virð­ist eng­inn til­­­bú­inn að gefa neitt eft­­ir. Í gær gengu til­lögur um útfærslur á lausnum á milli við­ræð­ur­að­ila en ekki náð­ist saman um þær.

Flestir við­­mæl­endur Kjarn­ans voru afar svart­­sýnir á að nást myndi saman og töldu því lík­­­leg­­ast að Bjarni myndi skila stjórn­­­ar­­mynd­un­­ar­um­­boð­inu í dag eða um helg­ina. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None