Nýr samningur við kennara setur fjármálaáætlanir sveitarfélaga í uppnám

Nýundirritaður kjarasamningur við kennara mun verða stór biti að kyngja fyrir sveitarfélög verði hann samþykktur, að sögn formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga.

1-mai_13896306809_o.jpg
Auglýsing

Verði nýr kjara­samn­ingur kenn­ara sam­þykktur af kenn­urum og sveit­ar­stjórnum mun það setja fjár­hags­á­ætl­anir Vest­manna­eyja­bæjar í upp­nám að mati Elliða Vign­is­son­ar, bæj­ar­stjóra í Vest­manna­eyj­um. Hall­dór Hall­dórs­son, for­maður Sam­bands íslenskra sveit­ar­fé­laga tekur í sama streng og segir nýjan samn­ing verða stóran bita fyrir mörg sveit­ar­fé­lög.

Nú er verið að kynna kjara­samn­ing­inn sem for­svars­menn sveit­ar­fé­laga og Félags grunn­skóla­kenn­ara und­ir­rit­uðu í húsa­kynnum Rík­is­sátta­semj­ara á þriðju­dag fyrir kenn­urum og sveit­ar­stjórn­ar­mönn­um. Sam­kvæmt fréttum var samið til eins árs og fá kenn­arar á end­anum tæp­lega 11 pró­sent launa­hækkun í tveimur skrefum auk ein­greiðslu að upp­hæð 204 þús­und krónur um ára­mót­in.

Sumir kenn­arar hafa þegar lýst óánægju sinni með samn­ing­inn og sagt hann keim­líkur þeim samn­ingum sem grunn­skóla­kenn­arar hafa þegar fellt. Ein­hverjir kenn­ara hafa látið verða af upp­sögnum sem þeir höfðu hót­að.

Auglýsing

Elliði Vign­is­son, bæj­ar­stjóri í Vest­manna­eyja­bæ, segir í sam­tali við frétta­vef­inn Eyj­ar.­net að kjara­samn­ing­arnir feli í sér mik­inn kostn­að­ar­auka fyrir bæinn. „Ef að fram fer sem horfir og þessir kjara­samn­ingar sem voru und­ir­rit­aðir í gær verða sam­þykktir þá er um hátt í 50 millj­óna kostn­að­ar­auka að ræða fyrir okk­ur. Það er alveg ljóst að við bætum því ekki við, nema að bregð­ast við með ein­hverjum hætt­i,“ er haft eftir Elliða.

Hann segir enn fremur að í fjár­hags­á­ætl­unum næsta árs, sem enn á eftir að sam­þykkja, sé gert ráð fyrir 41 milljón krónum í rekstr­ar­af­gang. „Þessir samn­ingar þurrka þann afgang upp, og gott bet­ur.“ Spurður um hvaða aðgerðir bær­inn gæti farið í til þess að mæta auknum segir Elliði: „Í raun er bara allt und­ir.“

Hall­dór Hall­dórs­son, for­maður Sam­bands íslenskra sveit­ar­fé­laga og odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­ar­stjórn Reykja­vík­ur, segir stöð­una svip­aða í fleiri sveit­ar­fé­lög­um. „Við vissum að við værum að teygja okkur alveg til hins ýtrasta […] mér sýn­ist þetta vera staðan víða,“ er haft eftir Hall­dóri í Morg­un­blað­inu í dag. „Það breytir því ekki að við verðum að borga kenn­urum góð laun, en þetta tekur auð­vitað á.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None