Auðun Georg ráðinn í stjórnunarstarf hjá Árvakri

Auðun Georg Ólafsson hefur verið ráðinn í stjórnunarstarfs hjá miðlum Árvakurs. Hann var ráðinn fréttastjóri Útvarps árið 2005 en hætti áður en hann hóf störf m.a. vegna mótmæla starfsfólks.

morgunblai_15667519155_o.jpg
Auglýsing

Auðun Georg Ólafs­son hefur verið ráð­inn í stjórn­un­ar­starf hjá Árvakri, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins. Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans hefur hann verið kynntur fyrir hluta starfs­fólks félags­ins og er talið að hann muni gegna ein­hvers konar nýrri frétta­stjóra­stöðu útvarps­sviðs Árvak­urs. Auðun Georg hefur und­an­farið starfað sem rit­stjóri Kópa­vogs­blaðs­ins. 

Til­kynnt var um það í októ­ber 2016 að Árvakur hefði keypt allan útvarps­­­rekstur Sím­ans, það er útvarps­­­stöðv­­­arnar K100 og Retro. 

Auðun Georg var ráð­inn í starf frétta­stjóra Útvarps árið 2005. Ráðn­ingin var afar umdeild, þar sem fimm aðrir umsækj­endur um stöð­una voru metnir hæf­ari til að gegna henni að teknu til­liti til starfs- og stjórn­un­ar­reynslu og mennt­un­ar. Frétta­­menn á Rík­­is­út­­varp­inu börð­ust sam­ein­aðir sem einn ­gegn ráðn­­ing­unni og nutu til þess stuðn­­ings Blaða­­manna­­fé­lags Íslands.

Auglýsing

Auðun Georg átti að hefja störf 1. apríl 2005. Þann sama dag fór hann í við­tal við frétta­mann Útvarps og varð þar tví­saga um hvort hann hefði átt fund með Gunn­laugi Sæv­ari Gunn­laugs­syni, þáver­andi for­manni útvarps­ráðs, dag­inn áður.

Sama dag, 1. apríl 2005, sendi Auðun Georg frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann sagði, með til­liti til aðstæðna á frétta­stofu Rík­is­út­varps­ins, þá sæi hann sér ekki fært að þiggja starf frétta­stjóra og myndi ég því ekki skrifa undir ráðn­ing­ar­samn­ing.

Í yfir­lýs­ing­unni sagði m.a.: „Ég sótti um starfið á jafn­ræð­is­grund­velli án þess að vera til þess hvattur og ekki í umboði eins eða neins, hvorki stjórn­mála­afla né ann­arra. Þrátt fyrir að vegið hafi verið að per­sónu minni með afar ósann­gjörnum hætti, mann­orð mitt svert með röngum ásök­un­um, hreinum lygum haldið á lofti og mér allt að því hót­að, ákvað ég engu að síður að mæta til starfa með opnum huga og gefa frétta­mönnum á frétta­stofu Rík­is­út­varps­ins tæki­færi til að sýna að sann­girni, hlut­leysi, rétt­læti og fag­leg vinnu­brögð væru höfð að leið­ar­ljósi. Í við­tali sem ég veitti frétta­manni Rík­is­út­varps­ins í dag í til­efni af því að ég hæfi störf var með lævís­legum hætti reynt að koma mér í vand­ræði. Það tók­st, þar sem ég vildi ekki rjúfa trún­að. En frétta­mað­ur­inn var ekki hlut­laus, hann var máls­að­ili, og honum tókst ekki að gera grein­ar­mun þar á. Ég hlakk­aði til að takast á við skemmti­legt og ögrandi starf á frétta­stofu sem naut trausts og þekkt var fyrir mál­efna­leg og fag­leg vinnu­brögð. Það er með miklum trega sem ég lýsi yfir að vænt­ingar mínar voru á mis­skiln­ingi byggð­ar.“

Gunn­laugur Sævar er í dag stjórn­ar­for­maður Ísfé­lags Vest­manna­eyja, en eig­endur þess eru stærstu hlut­hafar Árvak­urs. Sig­ur­björn Magn­ús­son, stjórn­ar­for­maður Árvak­urs, situr líka í stjórn Ísfé­lags­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None