Starfsmaður fær bætur fyrir að hafa verið fastur á Bessastöðum

Umsjónarmaður með forsetabústaðnum var hlunnfarinn um 7,5 milljónir króna í laun að mati héraðsdóms. Hann segist í raun hafa verið fastur á Bessastöðum allan tímann sem hann vann þar.

Bessastaðir.
Bessastaðir.
Auglýsing

Umsjón­ar­maður með for­seta­bú­staðnum á Bessa­stöðum fær 7,5 millj­ónir króna í bætur sam­kvæmt dómi Hér­aðs­dóms Reykja­vík­ur. Dóm­ur­inn komst að þeirri nið­ur­stöður að mað­ur­inn hefði verið hlunn­far­inn um þessa upp­hæð í laun á meðan hann vann á Bessa­stöð­u­m. 

RÚV greindi frá þessu í morg­un, en dóm­ur­inn hefur ekki verið birtur opin­ber­lega þrátt fyrir að hafa verið kveð­inn upp á þriðju­dag. 

Mað­ur­inn þurfti að vera til staðar á Bessa­stöðum allan sól­ar­hring­inn í rúm­lega fjögur og hálft ár, nema þegar hann fékk vakta­frí aðra hverja helgi. Ofan á vinnu­skyldu sína sem var um 250 klukku­tímar á mán­uði var hann í raun stans­laust á bak­vakt, en fékk hins vegar aldrei greitt fyrir það. 

Auglýsing

Sam­kvæmt dómnum gekk mað­ur­inn í mjög mörg störf á Bessa­stöðum meðan hann vann þar á árunum 2010 til 2014. Hann hafi sinnt almennri vörslu, eft­ir­liti, umsjón með húsa­kosti og lóð, auk tækni- og örygg­is­mála. Hann sagði í stefnu sinni á hendur rík­inu að hann hafi í raun verið fastur á Bessa­stöð­um, en það hafi verið þvert á það sem honum var sagt þegar hann réði sig til starfa í upp­hafi árs­ins 2010. Þá hafi honum verið sagt að hann þyrfti stundum að vera á bak­vakt en sú kvöð yrði ekki íþyngj­andi. Hann þyrfti að hafa nátt­stað á Bessa­stöðum en hefði fullt ferða­frelsi innan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. 

Hann segir hins vegar að bak­vakt­irnar hafi íþyngt honum mjög og að vinnu­skyldu hans hafi aldrei lok­ið. Hann hafi þurft að vera á Bessa­stöðum allan sól­ar­hring­inn nema þegar hann var í fríi. Auk þess hafi hann þurft að hlaupa í skarðið fyrir bíl­stjóra for­set­ans. 

Íslenska rík­ið, fyrir hönd for­seta­emb­ætt­is­ins, bar því meðal ann­ars við að miklu minna hefði verið að gera hjá mann­inum þegar for­set­inn, sem þá var Ólafur Ragnar Gríms­son, var í útlönd­um. Það hefði hann verið upp undir fjóra mán­uði á ári þegar mest var. Hann hafi einnig verið með hærri laun en for­veri hans og hann hafi getað stundað háskóla­nám með vinnu. Þetta taldi Hér­aðs­dómur Reykja­víkur ekki skipta máli, heldur hefði mað­ur­inn verið á bak­vakt allan þennan tíma og ætti að fá greidd laun fyrir það. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None