ASÍ: Kröftugur hagvöxtur en viðvörunarbjöllur hringja

ASÍ spáir því að mikill vöxtur muni áfram einkenna stöðu efnahagsmála. Vaxtarverkir eru þó sjáanlegir.

5,9 prósent hagvöxtur verður á þessu ári ef spá ASÍ gengur eftir.
5,9 prósent hagvöxtur verður á þessu ári ef spá ASÍ gengur eftir.
Auglýsing

ASÍ spáir áfram­hald­andi „kröft­ugum hag­vexti á þessu ári“ og að upp­sveiflan sé í hámarki um þessar mund­ir. Gert ráð fyrir 5,9 pró­sent hag­vexti á þessu ári en hann var 7,2 pró­sent í fyrra. 

Í nýrri hag­spá sam­bands­ins segir að til staðar séu hættu­merki meðal ann­ars vegna þeirra aðstæðna sem nú eru á fast­eigna­mark­aði, þar sem skortu á eignum er farin að valda tölu­verðum vand­ræð­um.

Ákveðin hættu­merki eru til staðar og óvissa hefur auk­ist frá síð­ustu spá hag­deildar m.a.  vegna þeirra aðstæðna sem hafa mynd­ast á hús­næð­is­mark­aði og mögu­legra áhrifa úrskurðar kjara­ráðs. Enn­fremur eru efna­hags- og verð­lags­horfur háðar þróun ferða­þjón­ust­unnar í meira mæli en áður. Spáin gerir ráð fyrir auknum fjölda ferða­manna þó hægja muni á vext­inum en sú for­senda ræður miklu um þró­un­ina framund­an.“

Auglýsing

Við spáum kröft­ugum vexti þjóð­ar­út­gjalda á þessu ári þar sem einka­neysla eykst um 7,2% og fjár­muna­myndun um 13,5%. Vöxtur einka­neysl­unnar skýrist af auknum kaup­mætti og traust­ari fjár­hags­stöðu heim­il­anna sem hafa nýtt svig­rúmið til að greiða niður skuld­ir, end­ur­nýja var­an­legar neyslu­vörur og bíla og ferð­ast erlend­is. Það hægir á fjár­fest­ingu atvinnu­veg­anna en aukin íbúða­fjár­fest­ing og opin­ber fjár­fest­ing styðja við fjár­fest­inga­stigið á spá­tím­an­um,“ segir í spá ASÍ.

Þá er tekið fram að ASÍ geri ráð fyrir því að gengi krón­unnar styrk­ist á spá­tím­an­um. og að verð­bólga verði áfram undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði Seðla­bank­ans. „Hæg­ari styrk­ing krón­unnar síð­ari hluta spá­tím­ans eykur verð­bólgu­þrýst­ing og að óbreyttu verður verð­bólga um 2,4% á næsta ári og 2,6% árið 2019. Styrk­ing krón­unnar þrengir að útflutn­ings­greinum og við teljum brýnt að áhrif styrk­ingar krón­unnar á sam­keppn­is­stöðu ann­arra atvinnu­greina verði met­in,“ segir í sam­an­tekt ASÍ.

Helstu tölur úr nýrri hagspá ASÍ.Þá er áréttað að við­vör­un­ar­bjöllur sé farnar að hringja á hús­næð­is­mark­aði. „Sölu­tími eigna hefur sjaldan verið skemmri og æ fleiri dæmi heyr­ast um að kaup­endur bjóði upp verð fast­eigna sökum skorts eða vænt­inga um fram­tíð­ar­hækkun fast­eigna­verðs. Aðstæður sem þessar geta hæg­lega leitt til þess að verð vaxi umfram það sem hefð­bundnir ákvörð­un­ar­þættir gefa til­efni til og því full ástæða til við­bragða að hálfu stjórn­valda.“

ASÍ telur mik­il­vægt að bregð­ast við á leigu­mark­aði þar sem of stór hluti fólks býr við ótryggt hús­næði og íþyngj­andi hús­næð­is­kostn­að. Tryggja þarf ungu fólki og tekju­lágu öruggt leigu­hús­næði og gera leigu­hús­næði að raun­veru­legum val­kosti í búsetu. Til þess er brýnt að hraða upp­bygg­ingu leigu­í­búða í nýja Almenna íbúða­kerf­inu enn frekar og fjölga íbúðum um a.m.k. 1.000 á ári næstu árin í stað þeirra 600 sem nú eru áformuð á ári fram til árs­ins 2019,“ segir í spá ASÍ.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None